19.02.2009
LH er að kanna áhuga þeirra sem eiga möguleika á að dæma heimsmeistaramótið fyrir hönd Íslands í sumar.
Mótið er haldið í Sviss dagana 3. – 9.ágúst 2009
19.02.2009
Frá Meistaradeild VÍS:
Mikil spenna er fyrir öðru móti Meistaradeildar VÍS sem fer fram í kvöld en þar verður keppt í fjórgangi. Margar þekktar stjörnur
munu þar berjast og nýjar koma fram.
18.02.2009
Baldvin Ari Guðlaugsson handhafi Ormsbikarsins eftirsótta, sem er veittur fyrir sigur í tölti á Ístölt Austurland, er ekki af baki dottinn. Hann er
bjartsýnn fyrir keppnina á laugardaginn og segist taka stefnuna á að vinna allar greinarnar þrjár, A-flokk, B-flokk og tölt.
18.02.2009
*Í kvöld verður Guðmundur Arnarsson reiðkennari í Reiðhöllinni og leiðbeinir Fáksfélögum. Eins og
venjulega er reiðkennslan á milli klukkan átta og tíu um kvöldið. Frí þjónusta - um að gera að nýta sér
því alllar leiðbeiningar sem gera okkur að betri hestamönnum eru vel þegnar.
18.02.2009
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga er á leið í fundaherferð um landið á næstu vikum í febrúar og
mars.
18.02.2009
Rangárhöllin á Gaddstaðaflötum verður formlega vígð næstkomandi laugardag, 21. febrúar 2009 kl. 13:00. Boðið verður upp á
atriði ungmenna, frægir hestar koma fram og á eftir verða kaffiveitingar.
17.02.2009
Ráðstefna um Sauðárkrókshrossin verður haldin á vegum Söguseturs íslenska hestsins, laugardaginn 21. mars 2009. Ráðstefnan fer fram
í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki og hefst kl. 13.00. Ráðstefnustjóri verður Víkingur Gunnarsson. Þetta kemur
fram á vef Söguseturs íslenska hestsins.
17.02.2009
Æskulýðsmót á ís verður haldið á vegum LH í Skautahöllinni í Reykjavík á skírdag, 9. apríl.
Afrakstur af mótinu rennur til æskulýðsstarfa innan LH. Keppt verður í unglinga- og ungmennaflokkum.
17.02.2009
Undirbúningi fyrir ístöltsmótið Svellkaldar konur sem haldið er af Landssambandi hestamannafélaga til stuðnings landsliðs Íslands miðar
vel. Skráning á mótið hefst á fimmtudaginn kemur, 19. febrúar og stendur til miðnættis mánudaginn 23. febrúar.
17.02.2009
Síðasta skráningardagur vegna Ístölt Austurland er á morgun, en að venju rennur skráningarfrestur endanlega út um tíuleytið annað
kvöld. Ístölt Austurland fer fram næstkomandi laugardag 21. febrúar. Skráningar fara fram á freyfaxi@freyfaxi.net og hjá Gunnþórunni
í síma 847-0116.