23.02.2009
Við vígslu Rangárhallarinnar síðastliðinn laugardag var undirritaður samningur milli LH, hestamannafélagsins Geysis, og UMFÍ, sem verður
aðalstyrktaraðili Meistaradeildar ungmenna.
23.02.2009
Dregið hefur verið um rásröð á Svellkaldar konur, sem er hluti af ísmótaröð LH, og fer fram nk. laugardag 28. febrúar.
Rásröðin birtist hér að neðan. Afskráningar og breytingar skulu berast sem fyrst á netfangið skjoni@simnet.is.
23.02.2009
Úrtaka fyrir HM2009 í Sviss verður haldin á velli Fáks í Víðidal dagana 16. – 18. júní. Úrtökumótið
verður nú tveir dagar í stað fjögurra áður. Landsliðsnefnd LH hefur sent frá sér nýjan lykil að vali landsliðsins.
23.02.2009
Rangárhöllin á Gaddstaðaflötum var vígð með pompi og prakt á laugardaginn var. Fjöldi manns sótti vígsluna og það var
sannarlega hátíðarstemmning á Gaddstaðaflötum. Nú skipti smávægileg væta engu máli. Allir höfðu það notalegt
undir þaki reiðhallarinnar.
21.02.2009
Skráning á ístöltsmótið "Svellkaldar konur" fluggengur og nú eru aðeins örfá pláss eftir af þeim 100 sem í boði
eru. Þannig að þær konur sem hafa hugsað sér að taka þátt þurfa að hafa hraðann á.
20.02.2009
Sumarið 2009 verður boðið upp á námskeið í Reiðmennsku og Sögu hestsins við Hólaskóla - Háskólann
á Hólum. Námskeiðið er opið þeim sem hafa lokið stúdentsprófi og hafa grunnþekkingu í meðhöndlun hesta og
reiðmennsku. Áfangarnir eru hluti af sameiginlegri námsbraut til BS prófs í Hestafræði við Hólaskóla - Háskólann á
Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands.
20.02.2009
Nýlega voru stofnuð samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra. Hafa samtökin hlotið nafnið
Hýruspor.
Markmið samtakana er:
·Að fjölga ferðamönnum sem sækja hestatengda ferðaþjónustu á Norðurlandi
vestra (Skagafirði og Húnavatnssýslum)og efla um leið afleidda þjónustu (gistingu, veitingar o. s. frv.)
20.02.2009
Nú er allt í járnum
Nú er lag að læra að járna.
Því minnum við ykkur á að skrá ykkur á
járninganámskeiðið sem Óskar Jóhannsson
heldur fyrir Hestamannafélagið Sörla nú
um helgina lau. 21. og sun. 22. febrúar.
Skráning hjá Magnúsi á Sörlastöðum í síma 897 2919
eða með tölvupósti á netfangið sorli@sorli.is
Fræðslunefnd Sörla
20.02.2009
Eyjólfur Þorsteinsson er ennþá efstur í einstaklingskeppni Meistaradeildar VÍS þegar tveimur mótum er lokið. Hann var efstur í fyrsta
mótinu, Smala, og í sjötta sæti í fjórgangi í gærkvöldi. Hann er með 17 stig alls.
20.02.2009
Sigurður Sigurðarson á Suðra frá Holtsmúla varð efstur í fjórgangi á öðru móti Meistaradeildar VÍS í
gærkvöldi. Sigurður sigraði einnig í þessari grein í fyrra, þá á Yl frá Akranesi.