Æskulýðsnefnd LH auglýsir fundi

Æskulýðsnefnd LH auglýsir fundarröð með fulltrúum æskulýðsnefnda hestamannafélaganna.

Uppfærðar sóttvarnarreglur LH

Æfingar og keppni eru heimilar þar sem hægt er að tryggja 10 manna fjöldatakmörk í hverju sóttvarnarhófli .

Alendis og LH undirrita samstarfssamning

Alendis TV & Landssamband hestamannafélaga hafa gert með sér spennandi samstarfssamning til þriggja ára.

Ákvarðanir FEIF vegna WorldRanking móta

Vegna núverandi ástands hefur stjórn FEIF tekið eftirfarandi ákvarðanir varðandi WorldRanking mót

Veitingasala einungis heimil í upphafi keppni

Í nýjustu uppfærslu á sóttvarnarreglum er breyting reglum um veitingasölu sem einungis má hafa í upphafi keppni en ekki í hléi eða í lok móts. Einnig er skerpt á reglum um að áhorfendur skuli vera skráðir í númeruð sæti og ekki er leyfilegt að skipta á sætum.

FEIF auglýsir rafrænt námskeið fyrir reiðkennara

FEIF auglýsir rafrænt námskeið fyrir reiðkennara í samtarfi við Gait Academi og Norwegian Icelandic Horse Association (NIHF).

Fræðsla og líkamlegar mælingar á landsliði LH

Á dögunum kom A-landliðið saman og gerðar voru mælingar á styrk, jafnvægi og þoli. Slíkar mælingar eru orðnar fastur liður í landsliðsstarfinu og gefa knöpum upplýsingar um líkamlegt ástand, ásamt því að vera nauðsynleg gagnasöfnun fyrir íþróttahreyfinguna. Niðurstöður mælinganna eru settar inn í miðlægan gagnagrunn ÍSÍ og nýtast til samanburðar við stöðu afreksíþróttafólks í öðrum íþróttagreinum.

Youth-Camp 2021 í Finnlandi verður ekki haldið í ár

Æskulýðsnefnd FEIF ásamt skipuleggjendum í Finnlandi hafa ákveðið að fresta FEIF youth camp í sumar fram til sumarsins 2022.

Hertar sóttvarnarreglur um áhorfendur

Heilbrigðisyfirvöld hafa gefið út hertar reglur um áhorfendur á íþróttaviðburðum. Kaflinn um áhorfendur í sóttvarnarreglum LH hefur verið uppfærður. Helstu breytingar eru að nú þarf að skrá áhorfendur í númeruð sæti. Mikil áhersla er lögð á að allir áhorfendur beri grímu sem hylur nef og munn en nokkuð hefur borið á að grímuskylda sé ekki virt meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum.

Mótsstjórnir fjalli um brot á keppnisreglum

Stjórn LH hefur óskað eftir því við mótsstjórnir Metamóts 2020 og Skeiðleika 2 2020 að þær meti hvort endurskoða skuli mótsskýrslur þessara móta í ljósi atvika sem áttu sér stað á þessum mótum þar sem keppnisreglur LH voru brotnar með því að sama keppnispar keppti í bæði 150m. og 250 m. skeiði.