06.03.2009
Árshátíðarmót Mána verður haldið laugardaginn 7. mars kl 13.00. Ef veður er mjög slæmt færist mótið inn í
reiðhöll. . . Pollar keppa í reiðhöllinni.
05.03.2009
Hestar voru tamdir af manninum mun fyrr en áður var talið samkvæmt breskum fornleifafræðingum. Þeir hafa fundið merki þess að hross hafi verið
notuð á menningarsvæði í Kazakhstan fyrir um 5.500 árum síðan.
05.03.2009
Komin er á vefinn ný handbók um Kappa og Sportfeng. Hana má finna á pdf. formi undir hnappnum “Keppnismál” hér á lhhestar.is:
Ný handbók SportFengs og Kappa 2009.
05.03.2009
Keppendur, eigendur hesta og knapar þeirra, eru ábyrgir fyrir því að þeir séu rétt skráðir í félagatal LH og þar
með Sportfeng. Allnokkrir hestamenn eru skráðir í tvö eða fleiri hestamannafélög. Þeir verða sjálfir að láta vita fyrir
hvaða félag þeir ætla að keppa áður en keppnistímabilið hefst. Að öðrum kosti er undir hælinn lagt hvaða félag
verður fyrir valinu í mótsskrá.
05.03.2009
Það var sannkölluð veisla sem var boðið uppá í töltkeppni KS-deildar í gærkveldi og þau allra sterkustu úrslit sem sést
hafa í Svaðastaðahöllinni. Bjarni og Komma hikstuðu aðeins í forkeppninni, en voru komin í gírinn í B-úrslitum.
05.03.2009
Ísleikar á Svínavatni hafa heldur betur sett strik í reikninginn hjá meistaradeild UMFÍ. Að beiðni nokkurra liðsmanna meistaradeildarinnar
hefur verið ákveðið að fresta fyrstu keppni sem átti að vera á laugardaginn kemur. Þess í stað mun fyrsta keppni deildarinnar verða
föstudaginn 13. mars og hefst hún kl. 1700. Og til að jafna aðstöðu þátttakenda var ákveðið að keppni í smala verði
frestað til 21. mars en slaktaumatölt T2 verði fyrsta keppnisdaginn eða 13. mars.
05.03.2009
Aðrir vetrarleikar ársins verða haldnir laugardaginn 7.mars nk. í boði Keiluhallarinnar og Gusts. Öllum er boðið í kaffi í Helgukoti á
milli kl. 11 og 13 og skráning á vetrarleikana fer fram á sama stað á milli kl. 11 og 12, en mótið hefst kl. 13. Mótið er annað af
þremur í stigamótaröð Keiluhallarinnar.
04.03.2009
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna-félaga er á fundaherferð um landið á næstu vikum í febrúar og mars. Fundirnir verða opnir
öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf í hestamannafélögunum og er það von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært
að mæta.
04.03.2009
ÍSÍ hefur breytt fyrirkomulagi fræðslunámskeiða. Nú er boðið upp á fimm kennslustunda fræðslukvöld sem fara fram í
miðri viku, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Boðað hefur verið til hádegisfundar til að kynna breytingarnar.
04.03.2009
Á fimmtudaginn fer fram þriðja mótið í Meistaradeild VÍS. Mótið verður haldið í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan
19:30. Hart verður barist bæði í einstaklings og liðakeppninni og verður gaman að sjá hver mætir með hvern.