26.02.2009
Véfengja má öll heimsmet í skeiði sem sett hafa verið síðan startbásar og rafræn tímataka var tekin upp. Þetta segir
Jóhann Valdimarsson, sem séð hefur um rafræna tímatöku fyrir LH. Jóhann hefur í mörg ár bent á skekkjur, sem
óhjákvæmilega eru til staðar milli staða þar sem startbásar og rafræn tímataka er notuð. Ekkert hefur þó ennþá
verið gert til að samræma tímatöku milli landa.
26.02.2009
Sólon Morthens, nemandi á 2. ári hestafræðideildar í tamningum, náði nú á dögunum góðum árangri þegar hann
hafnaði í öðru sæti á opna Bautamótinu í tölti á hryssunni Kráku frá Friðheimum. Á mótinu sem var haldið
þann 21. febrúar í Skautahöllinni á Akureyri hlaut hann einnig viðurkenningu frá norðurdeild Félags tamningamanna fyrir fágaða og
prúðmannlega reiðmennsku.
26.02.2009
Úrtökukeppni fyrir Meistaradeild UMFÍ verður haldin í Rangárhöllinni laugardaginn 28. febrúar og hefst kl. 10. Minnum á að skráning
er hafin á ssaggu@int.is.
26.02.2009
Sveitarfélögin Hörgárbyggð og Arnarneshreppur Eyjafirði hafa samþykkt að greiða umtalsverðan hluta kostnaðar við reiðvegagerð.
Verið er að malbika vegarkafla á svæðum þar sem mikil hestamennska er stunduð.
25.02.2009
Hestar og menn á Héraði munu væntanlega spóka sig í nýrri reiðhöll að ári. Nýlega var undirritaður samningur um byggingu
1500 fermetra reiðhallar sem byggð verður á Iðavöllum, félagssvæði Freyfaxa.
24.02.2009
Í undirbúningi er málþing um leiðir til að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka við sýningar hrossa. Málþingið
er haldið á vegum félagasamtaka í hrossarækt og hestamennsku, auk landbúnaðarháskólanna og Matvælastofnunnar.
24.02.2009
Opinn fundur með æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga er á fundaherferð um landið á næstu vikum í febrúar og mars.
24.02.2009
Þá fer að styttast í Svarfdælsku mótaröðina 2009, fyrsta umferð verður haldin í Hringsholti fimmtudagskvöldið 5.mars kl
20:00.
24.02.2009
Nú styttist í Ís-Landsmótið á Svínavatni laugardaginn 7. mars. Vegleg verðlaun verða í boði m.a. 100.000. kr. fyrir 1.
sæti í öllum greinum. Þar sem horfur eru á mikilli þátttöku áskilja mótshaldarar sér rétt til að takmarka
skráningafjölda ef á þarf að halda og ræður þá reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.
24.02.2009
Á laugardaginn kemur mun hið árlega ístöltsmót kvenna "Svellkaldar konur" sem haldið er á vegum Landssambands hestamannafélaga fara fram
í Skautahöllinni í Laugardal í Reykjavík.