03.03.2009
Allir félagsmenn í FEIF, og þar með taldir allir félagsmenn í LH, munu fá frían aðgang að WorldFeng innan tíðar. Samkomulag
milli FEIF og Bændasamtaka Íslands um þess efnis frá því í fyrra var samþykkt á aðalfundi FEIF sem fram fór í Hamborg
í Þýskalandi síðastliðna helgi.
02.03.2009
Þá er komið að öðru keppniskvöldi KS deildarinnar Á miðvikudagskvöldið verður keppt í tölti og hefst keppnin kl. 20.00
Margir sterkir hestar eru skráðir til leiks og ljóst að keppnin verður hörð.
02.03.2009
Ljósmyndasöfn frá Svellköldum konum 2009 er komið á vefinn. Smellið á “Ljósmyndir” hér til vinstri og þá getið
þið skoðað myndir frá þessu skemmtilega hestamóti. Góða skemmtun.
02.03.2009
Nú styttist óðum í stærsta ísmót ársins þar sem margir af bestu knöpum og hestum landsins mæta, Hans Kjerúlf mun mæta
með Sigur frá Hólabaki sem sigraði Bautamótið nú á dögunum, Jakob Sigurðsson mætir með Kaspar frá Kommu en hann sigraði B
flokkinn í fyrra á Svínavatni.Tryggvi Björnsson mætir með Akk frá Brautarholti sem varð í 3. sæti B-fl. á LM 2008.
02.03.2009
Það hefur reynst þrautin þyngri í gegnum tíðina að fá hestamennskuna samþykkta sem íþrótt í Sjónvarpi allra
landsmanna, hvað þá hjá öðrum sjónvarpsstöðvum. Það er því kærkominn áfangasigur í hvert sinn sem
það tekst.
02.03.2009
Konur er svellkaldar ef því er að skipta. Og ekkert síður en karlar. Það sýndu þær á hinu árlega ísmóti
“Svellkaldar konur” sem fram fór í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn var. Lena Zielinski á Einingu frá Lækjarbakka sigraði
í opnum flokki og þær stöllur voru útnefndar glæsilegasta par mótsins af dómurum.
02.03.2009
Meistaradeild UMFÍ var hleypt af stokkunum á laugardaginn var. Fimmtán keppendur skráðu sig í deildina, sem er töluvert færra en búist var
við. Á meðal keppenda eru kunnir knapar úr röðum æskufólks. Arnar Bjarki Sigurðsson og Rakel Natalie Kristinsdóttir eru efst og jöfn að
stigum eftir fyrstu umferð. Rakel sigraði í tveimur greinum, fjórgangi og tölti, en Arnar varð efstur í fimmgangi og í öðru sæti í
tölti.
28.02.2009
Keppni í Meistaradeild UMFÍ hefst í Rangárhöllinni í dag kl. 10.00. Aðgangur er ókeypis fyrir þá sem vilja koma og sjá
efnilegustu knapa ungu kynslóðarinnar sína snilldartakta. Keppnin stendur fram eftir degi og eru allir velkomnir. Dagurinn byrjar á fjórgangi,
þá verður keppt í fimmgangi og loks í tölti.
27.02.2009
Þær konur sem ríða munu til úrslita á Svellköldum konum á morgun munu aldeilis ekki fara tómhentar heim. Fjöldi fyrirtækja hefur
gefið fjölbreytt aukaverðlaun, allt frá snyrtivörum upp í dekkjaskipti. Einnig mun glæsilegasta par mótsins verða valið af dómurum og eru
verðlaunin þar ekki af verri endanum, en sú kona mun fá sérsaumaðan reiðjakka frá Maríu Lovísu fatahönnuði og Mountain Horse
reiðskó frá Líflandi.
26.02.2009
Mikil stemming er fyrir ístöltsmótinu Svellkaldar konur sem fram fer á laugardaginn kemur, 28. feb. Flottar konur og feikna góður hestakostur einkenna
mótið og verður hart barist í öllum flokkum. Hér að neðan má sjá dagskrá mótsins og uppfærða ráslista.