Forkeppni 6 v hryssna: dómum lokið á FM

Fordómum í keppni 6 vetra hryssna er lokið á Fjórðungsmóti.  Það er Ösp frá Auðsholtshjáleigu sem er efst en Ösp er undan Gára og Ör sem einnig eru frá Auðsholtshjáleigu.

FM: Forkeppni í B-flokki er hálfnuð

Mikil stemning er að myndast á Kaldármelum og æ fleiri hross, knapar og gestir streyma að. Léttskýjað er en hlýtt í veðri og 18°C hiti.  Forkeppni í B-flokki stendur nú sem hæst og er hálfnuð.

Hryssur 5 v: dómum lokið á FM

Dómum í forkeppni 5 v hryssna á Fjórðungsmóti er lokið.

Dómar 5v. hryssna - staðan fyrir hlé

Eftir hádegi í dag, miðvikudag, hófust dómar í forkeppni 5 og 6 vetra hryssna á Kaldármelum.  Rétt í þessu var gert stutt hlé á dómum 5 vetra hryssna en einungis á eftir að sýna tvær hryssur í þeim flokki eftir að hléi lýkur um kl. 16:00. 

Viðari og Tuma boðin þátttaka í töltinu á FM09

Mótshaldarar hafa ákveðið að bjóða sigurvegara í tölti á Landsmóti 2008, Tuma frá Stóra-Hofi og knapanum Viðari Ingólfssyni, að taka þátt í töltkeppninni á Fjórðungsmóti.

Fjölmenni á knapafundi

Fjöldi knapa var mættur á upplýsingafund sem haldin var rétt í þessu á Kaldármelum.

Dómar 4v. hryssa á FM09

Lokið er dómum í forkeppni á 4. vetra hryssum á Fjórðungsmóti á Kaldármelum. Efst stendur Vordís frá Neðri-Hrepp með ae. 8,12.

Fjórðungsmót hafið á Kaldármelum

Dagskrá Fjórðungsmóts hófst í morgun kl. 10:00 með dómum á 4ja vetra hryssum. Fyrsta hross sem steig fæti á nýuppgerða kynbótabrautina var 4ja vetra hryssan Birta frá Sauðadalsá, knapi var Elvar Logi Friðriksson.

Sól og blíða á Kaldármelum

Bongóblíða hefur verið á Kaldármelum í dag, degi áður en mótahald hefst.  Var haft á orði í hópi lykilstarfsmanna á svæðinu að vert væri að gefa frí vegna veðurs í dag!  Því var nú ekki að heilsa en svæðið er farið að taka á sig mótsblæ, fánarstangir, risaskjar og tjöld eru risin og fólk er byrjað að flykkjast á svæðið.    

Klængur frá Skálakoti sigurvegari B-flokks hestaþings Sindra

Hestaþing Sindra 2009 var haldið dagana 27. og 28. júlí á Pétursey, mótssvæði hestamannafélagsins.