07.01.2009
Það verður byggð reiðhöll á Kirkjubólseyrum. En eins og staðan er núna þá teljum við hyggilegast að bíða fram á vorið með hefja framkvæmdir. Við viljum sjá fyrir endann á þessu áður en við hefjumst handa, segir Vilberg Einarsson, formaður Blæs á Norðfirði.
07.01.2009
Á laugardaginn kemur þann 10. janúar BÝÐUR Æskulýðsnefndin öllum Sörlabörnum og unglingum á skauta í Eglishöllinni. Safnast verður saman í bíla við Sörlastaði kl. 13.00 stundvíslega og áætlað er að vera á skautum í u.þ b. 1-2 tíma.
06.01.2009
Námið á hestabraut FSu hefur nýst mér vil á Hólaskóla, segir Kristbjörg Arna Albertsdóttir, sem útskrifaðist af hestabraut FSu síðastliðið vor. Kristbjörg Arna er í fyrsta árgangi sem útskrifast af hestabraut FSu.
02.01.2009
Hrossabrautin á FSu var alveg frábær. Hún brýtur upp hina hefðbundnu dagskrá og í heildina varð allt námið við skólann miklu skemmtilegra, segir Ásdís Hulda Árnadóttir, sem útskrifaðist af hrossabraut Fjölbrautarskóla Suðurlands síðastliðið sumar.
30.12.2008
Vant hestafólk veit að hestar eru logandi hræddir við flugelda og aðrar áramótasprengjur. Það er hins vegar ástæða til að benda minna vönu fólki á þessa hættu. Hestar geta fælst illa við flugelda og dæmi eru um slys af þeim sökum.
30.12.2008
Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi fékk 25 milljónir úr reiðhallarsjóði Guðna Ágústssonar. Áform voru uppi um að byggja risa reiðhöll í samstarfi við sveitarfélagið Árborg. Þær fyrirætlanir eru nú að engu orðnar.
22.12.2008
Sigurður Ragnarsson í Keflavík og Sigurður Sigurðarson, knapi og tamningamaður, hafa fest kaup á stóðhestinum og Íslandsmeistaranum í fjórgangi, Suðra frá Holtsmúla. Sigurður knapi er þegar byrjaður að þjálfa hestinn og þarf vart að spyrja að því að stefnan er sett á HM2009 í Sviss.
22.12.2008
Reiðmaðurinn, tveggja ára nám sem hófst við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í haust, hefur slegið í gegn. Um sextíu manns sóttu um námið. Fjörutíu og fjórir fengu pláss. Nemendur stunda námið að langmestum hluta heima hjá sér.
22.12.2008
Nú líður senn að því að nemendur á öðru ári í Hólaskóla flögra úr hreiðrinu og dreifa sér á tamningastöðvar vítt og breytt um landið. Þar starfa nemendur í fimm mánuði. Þetta er hinn svokallaði verknámshluti, sem þarf til að útskrifast sem tamningamaður.
19.12.2008
Landssamband hestamannafélaga hefur tilnefnt tvo knapa í val írþóttamanns ársins hjá ÍSÍ, karl og konu. Hestaíþróttakona LH er Hulda Gústafsdóttir og Árni Björn Pálsson heldur uppi heiðri karla.