08.12.2008
Við erum búin að fá nokkur þriggja vetra ótamin trippi í sundþjálfun í haust. Það kemur rosalega vel út. Þau temjast undrafljótt. Fá mikið traust á manninum. Þetta er greinilega mjög góður undirbúningur fyrir frekari tamningu, segir Jakob S Þórarinsson hjá Sundhestum.
05.12.2008
Byrjað er að temja afkvæmi úr fyrsta árganginum undan Álfi frá Selfossi. Vel er látið af þeim og þykir hann erfa frá sér hina léttu og kátu lund sem einkennir hann sjálfan. Í kaupbæti gefur hann stærri og myndarlegri hross en hann er sjálfur.
05.12.2008
Danir eru vel ríðandi og hafa metnað í reiðmennsku, segir Erlingur Erlingsson, sem nú er í sinni fimmtu kennsluferð í Danmörku á þessu ári. Þetta á við bæði um hinn almenna hestamann og atvinnumennina. Danir eru á uppleið.
05.12.2008
Magnús Skúlason í Svíþjóð hefur keypt stóðhestinn Kraft frá Kvistum. Kraftur er einn nokkurra afkvæma Nagla frá Þúfu sýnd voru í vor. Kraftur er álitlegur keppnishestur í tölti og fjórgangi og kaupir Magnús hann sem slíkan. Kraftur er á fimmta vetur.
04.12.2008
Smíði á nýrri heimasíðu LH er hafin. Tekið var tilboði frá Stefnu á Akureyri, sem er öflugt fyrirtæki á þessu sviði. Stefna hefur smíðað vefi fyrir mörg stór fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Má þar nefna Búseta, Vodafone, ASK Arkítekta, Tölvuskólann, iSoft, Þekkingu og sveitarfélagið Svalbarðsströnd.
04.12.2008
Fjölmenni var á árlegum haustfundi HEÞ sem haldinn var í Funaborg, félagsheimili Funamanna í gærkvöldi. Frummælendur voru Elsa Albertsdóttir doktorsnemi við Lbhí, Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Þórir Örn Grétarsson frá Sjóvá. Erindin voru fróðleg og skemmtileg og urðu miklar umræður um þau.
03.12.2008
Nú eru að koma í tamningu trippi undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum, fædd 2005, árið eftir að hann setti heimsmet í aðaleinkunn á LM2004. Margar af bestu hryssum landsins voru leiddar undir hestinn það sumar.
02.12.2008
Á uppskeruhátíð Fáks um helgina voru afreksknapar og afrekssjálfboðaliðar heiðraðir. Að venju bauð Fákur öllum þeim sem hafa starfað fyrir félagið til hátíðarinnar. Sigvaldi kokkur galdraði fram dýrindis mat og Eyjólfur veislustjóri sá um að halda mönnum við efnið.
02.12.2008
Olil Amble og Bergur Jónsson á Syðri-Gegnishólum hafa ráðist í byggingu reiðhallar. Framkvæmdir við grunn eru þegar hafnar. Húsið er frá Límtré og er 20x50 metrar að flatarmáli.
02.12.2008
Á heimasíðum hestamanna- félaganna kennir ýmsra grasa. Á www.sorli.is er að finna kvæði eftir Elías M V Þórarinsson um íslenskt, vestfirskt fannfergi. Dóttir Elíasar, Kristín Auður, heldur úti veitingasölu í Sörla og lagði heimasíðunni til kvæðið.