18.05.2009
Íþróttamót Harðar og VÍS fór fram á Varmárbökkum um helgina. Úrslitu urðu eftirfarandi.
18.05.2009
Upptökur af hrossum sem sýnd voru á kynbótasýningu sem haldin var í Víðidal dagana 14. og 15. maí eru tilbúnar. Tekin voru upp
öll hross í fordóm og einnig yfirlitssýning. Þeir sem hafa áhuga á að eignast upptöku af stöku hrossi er bent á að hafa samband
við Ben Media í síma 6968880.
17.05.2009
Miðvikudaginn 20. maí fara fram fyrstu Skeiðleikar Skeiðfélagsins í ár. Mótið átti að fara fram síðasta miðvikudag en var
frestað vegna veðurs. Þeir keppendur sem skráðu sig á mótið í síðustu viku þurfa að tilkynna ef þeir hyggjast ekki keppa
að öðru leyti teljast þeir skráðir á mótið.
15.05.2009
Opin Gæðingakeppni Mána og Sparisjóðsins verður haldin dagana 23. og 24. maí á Mánagrund.
14.05.2009
Yfirlitssýning kynbótahrossa í Víðidal er á morgun og hefst kl. 10:00. Byrjað verður á hryssum í flokki 7 vetra og eldri og
endað á stóðhestum 7 vetra og eldri. Reiknað er með að yfirlitssýningunni ljúki um kl. 12:00.
14.05.2009
Þeir landsdómarar sem áhuga hafa á að dæma Fjórðungsmót á Vesturlandi dagana 1. -5. Júlí 2009
14.05.2009
Þeir dómarar sem áhuga hafa á að dæma Íslandsmót fullorðna 16. – 18. Júlí 2009 og barna/unglinga/ungmenna 25. – 28.
júní 2009,
14.05.2009
Nú styttist í stóru stundina hjá Sóta enda hefur vind lægt og Ísland komið áfram í Eurovision. Meðfylgjandi eru
ráslistar fyrir opna íþróttamótið sem fer fram á Álftanesi um helgina en skráning fór fram úr björtustu
vonum. Hlökkum til að taka á móti keppendum og áhorfendum en mótið hefst kl. 11:00 á laugardaginn 15.maí. Það er aldrei
að vita nema forsetahjónin láti sjá sig, láttu þig ekki vanta í áhorfendahópinn!
14.05.2009
Opið WR íþróttamót Gusts hefst í Glaðheimum á morgun föstudaginn 15. maí kl. 17 með keppni í tölti. Góð
skráning er á mótið, en dagskrá og ráslista er að finna á heimasíðu Gusts, www.gustarar.is
13.05.2009
Sökum veðurs hefur stjórn og mótstjórn Skeiðfélagsins tekið þá ákvörðun að fresta Skeiðleikum sem halda átti
í kvöld þangað til miðvikudag í næstu viku.