01.05.2009
Sleipnismenn halda íþróttamót sitt um helgina á svæði félagsins á Selfossi. Hægt er að sjá allar upplýsingar um
mótið með því að smella á fyrirsagnir í RSS glugga hér til vinstri sem merktar eru "sleipnir.is".
01.05.2009
Sigurbjörn Bárðarson er sigurvegari Meistaradeildar VÍS 2009. Hann skaut yngri keppinautum sínum hressilega ref fyrir rass. Sigur hans var í höfn
áður en úrslit í síðustu keppnisgreinni fóru fram. Eyjólfur Þorsteinsson, sem var með 9 stiga forskot fyrir lokamótið,
náði ekki nema einu stigi út úr síðustu tveimur greinunum.
29.04.2009
Á síðasta ári byrjaði Ben Media með þá þjónustu að taka upp kynbótahross fyrir eigendur og voru á þriðja
hundrað hross fest á filmu. Í ár er ætlunin að taka upp öll kynbótahross sem koma í sýningu í Reykjavík, Hafnafirði og
á Hellu.
29.04.2009
Síðasta mót Meistaradeildar VÍS á þessum vetri fer fram í Ölfushöllinni á morgun, fimmtudag. Fjórir knapar eiga
fræðilegan möguleika á sigri: Eyjólfur Þorsteinsson, sem nú er efstur með 9 stiga forskot, Sigurbjörn Bárðarson, sem er í
öðru sæti, og síðan þeir Hinrik Bragason og Sigurður Sigurðarson. Talið er næsta víst að slagurinn muni standa á mill þeirra
Eyjófls og Sigurbjarnar.
29.04.2009
Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu fór fram síðastliðinn laugardag, kosningardaginn, í dásamlegu veðri.
Mótið hófst á stuttri hópreið um Álftanesið sem endaði á vellinum þar sem allir keppendur og fleiri til, tóku þátt
í. Eftir að formaður setti mótið og minntist þeirra hjóna hófu börnin keppnina.
29.04.2009
Hestamannafélagið Léttir mun standa fyrir sýningunni Æskan og hesturinn á Akureyri 2. maí. Þessi sýning hefur verið haldin á
Sauðárkróki undanfarin ár, en samkomulag var gert um að halda sýninguna til skiptis annað hvert ár á Sauðárkróki og Akureyri.
29.04.2009
Á morgun miðvikudaginn 29. apríl hefjast skráningar á kynbótasýninguna í Víðidal sem verður dagana 12.-15. maí. Tekið
verður við skráningum í síma 480-1800, einnig er hægt að skrá á hross til sýningar á heimasíðu
Búnaðarsambandsins www.bssl.is. Síðasti skráningardagur er 4. maí.
28.04.2009
Það er þétt dagskrá hjá Fáksmönnum næstu daga og vikur. Þar ber hæst Stórsýningu Fáks í
Reiðhöllinni í Víðidal. En fleira skemmtilegt er í vændum, svo sem Hlégarðsreiðin, og svo gæðingamótið sem margir
bíða spenntir eftir.
28.04.2009
Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík og Top Reiter í Reykjavík. Húsið
tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Því er um að gera að tryggja sér aðgöngumiða í tíma
því gera má ráð fyrir að það verði uppselt á þetta mót eins og var með fjórgangs- og fimmgangsmótin. Verð
á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur fyrir 13 ára og eldri og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri.
28.04.2009
„Markmiðið með þessari útfærslu á töltkeppninni er að gera meiri kröfur til reiðmannsins. Eins og keppnin er riðin í dag,
þá liggur mér við að segja að þú getir keypt hest í gær, unnið keppni á honum í dag, og síðan eyðilagt hann
á morgun,“ segir Reynir Aðalsteinsson, reiðkennari á Hvanneyri.