29.01.2010
Fyrsta keppni í Meistaradeild VÍS fór fram í gær, fimmtudaginn 28.janúar, en þá var keppt í Smala. Sigurvegari kvöldsins var
Árni Björn Pálsson sem keppir fyrir lið Líflands. Úrslitin má sjá hér fyrir neðan.
29.01.2010
Stjörnutölt 2010 verður haldið í Skautahöllinni Akureyri þann 20. mars. Takið daginn frá og komið og horfið á skemmtilega keppni sem
á engan sinn líkan.
27.01.2010
Meistaradeild VÍS hefst á morgun, fimmtudaginn 28.janúar kl. 19.30, á keppni í Smala. Hér fyrir neðan má sjá ráslistann:
25.01.2010
Laugardaginn 23.janúar var opnað kaffihús í Reiðhöllinni í Víðidal á neðri hæð húsins (andyrinu). Loksins, loksins geta
hestamenn komið saman og fengið sér kaffi og með því í notarlegheitum. Til að byrja með verður opið frá kl. 12:00 - 18:00 á
laugardögum og sunnudögum.
25.01.2010
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið
júlí 2009 til júní 2010. Veittir verða styrkir á bilinu 50.000.- 100.000.- krónur, allt eftir eðli umsóknar og fjölda
þeirra.
25.01.2010
Endanlegar dagsetningar á samræmingarnámskeiðum HÍDÍ verða eins og áður var auglýst sunnudaginn 21. feb. 2010 í
reiðhöllinni á Blönduósi og sunnudaginn 7. mars 2010 í Ingólfshöllinni í Ölfusi (Ekki 7.feb í Reykjavík eins og
áður misritaðist).
21.01.2010
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á Youth Cup sem verður haldið 10.- 18. júlí nk. Mótið er haldið í Kalo
í Damörku. Útvegaðir verða hestar ef óskað er. Skilyrði fyrir þátttöku: Reynsla í hestamennsku, enskukunnátta,
keppnisreynsla í íþróttakeppni, sjálfstæði, geta unnið í hóp og reglusemi.
21.01.2010
Hestamannafélagið Skuggi í Borgarnesi hefur nú tekið í notkun nýja heimasíðu, www.hmfskuggi.is. Þar er
að finna allar helstu upplýsingar um félagið, starfsemi þess og dagskrá vetrarins. Það er mikið um að vera hjá Skuggamönnum og
vetrarstarfið komið á fullt og þar kemur ný og glæsileg reiðhöll félagsins án efa að góðum notum.
19.01.2010
Sunnudaginn 24 janúar nk. mun Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Sörla, standa fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni
í Sörla kl. 16:00.
19.01.2010
Að beiðni HÍDÍ hefur nú verið sett á heimasíðuna FIPO leiðarinn 2009, FIPO reglurnar 2009 og skemamynd vegna útreikninga á einkunn
í fimmgangi. Upplýsingarnar er að finna undir KEPPNISMÁL - ÍÞRÓTTADÓMARAR - FIPO LEIÐARI 2009 ENSKA.
Einnig hægt að smella hér.