23.02.2010
Opið töltmót á Hnjúkatjörn sunnudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Skráning er hjá Óla Magg á netfangið: sveinsstadir@simnet.is
fyrir miðnætti fimmtudag 25. febrúar.
23.02.2010
Hið árlega Stjörnutölt verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri 20.mars n.k. Keppni úrvalstöltara á ís og opin
stóðhestakeppni 5 vetra og eldir. Þess má geta að skráningu í stóðhestakeppnina lýkur þriðjudaginn 16. mars kl. 20:00.
23.02.2010
Langvarandi frost og snjóleysi víða á landinu veldur því að sumstaðar er nú ekkert vatn að hafa fyrir útigangshross. Eigendur og
umráðamenn eru minntir á skyldur sínar til að fylgjast vel með hrossum á útigangi og og tryggja að þau hafi aðgang að vatni.
23.02.2010
Næsta grein í Meistaradeild VÍS er slaktaumatölt og fer keppnin fram í Ölfushöllinni á fimmtudaginn. Þetta er þriðja mótið
í deildinni og má gera ráð fyrir því að hart verði barist bæði í einstaklings og liðakeppninni. Gaman verður að sjá
hver mætir með hvern.
22.02.2010
Ístöltið „Allra sterkustu“ verður haldið í Skautahöllinni í Laugardal þann 3.apríl. Þar munu mæta til leiks
íslenskir landsliðsknapar, heimsmeistarar, Íslandsmeistarar og fleiri feikna sterkir knapar og hestar. Viðburður sem enginn hestamaður má láta fram
hjá sér fara.
22.02.2010
Undirbúningur vegna mótsins gengur ágætlega og mikil og góð stemming í gangi. Það eina sem menn hafa áhyggjur af (aðallega
sunnan heiða) er hvort ísinn sé í lagi.
22.02.2010
Á fundi þann 16. febrúar fjallaði stjórn Hestamannafélagsins Sörla um val stjórnar LH á landsmótsstað fyrir árið 2012.
Mjög skiptar skoðanir eru innan stjórnar Sörla og meðal félagsmanna um hvort halda eigi landsmót á höfuðborgarsvæðinu.
19.02.2010
Undirbúningur Landsmóts 2010 er á fullu skriði enda að mörgu að huga þegar að svo viðamiklum viðburði kemur. Eftir áralangt
samstarf liggur Lífland ekki á liði sínu og í morgun var undirritaður samstarfssamningur á milli fyrirtækisins og Landsmóts.
19.02.2010
Menntamatrixulistar FEIF er nú að finna á heimasíðu LH. Hér til vinstri á forsíðunni er flipi sem heitir Matrixa FEIF og þar er hægt
skoða listana.
19.02.2010
Næstkomandi fimmtudag hefst annað kvöldið af fjórum í KEA mótaröðinni í Top Reiterhöllinni á Akureyri. Keppt verður í
fjórgangi og hefst keppnin klukkan 20:00 fimmtudaginn 25. febrúar. Húsið opnar kl. 19:30.