06.11.2009
Frábærir tímar Sigurbjörns Bárðarsonar í 150m og 250m skeiði sem settir voru á Metamóti Andvara 4.-6.
september 2009 með rafrænum tímatökubúnaði hafa verið staðfestir.
06.11.2009
Skagfirska hljómsveitin Von mun spila fyrir dansi á Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway laugardaginn 7. nóv. Sigríður
Beinteinsdóttir mun leggja hljómsveitinni lið við að skemmta hestamönnum og halda uppi stuði fram á rauða nótt!
04.11.2009
Miðvikudaginn 11. nóvember nk. mun Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Skugga, standa fyrir kennslusýningu í
reiðhöllinni í Borgarnesi kl. 20.
04.11.2009
Enn er hægt að fá miða á Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway nk. laugardag, 7. nóv. en miðasala hefur annars gengið
gríðarlega vel og stefnir í fullt hús í borðhaldinu. Boðið verður upp á glæsilegan þriggja rétta málsverð, flotta
dagskrá og dansleik fyrir aðeins kr. 6.900 sem er umtalsverð lækkun frá því í fyrra.
29.10.2009
Föstudaginn 30. okt. 2009 verður sölusýning í reiðhöllinni á Flúðum. Sýningin hefst kl. 19.30 (ath. breytta tímasetningu). Einnig
verður uppboð á folatollum til styrktar æskulýðsnefndar, spennandi folar í boði.
28.10.2009
Félag tamningamanna stóð fyrir sýnikennslu með Antoni Páli Níelssyni í samvinnu við hestamannafélagið Gust í reiðhöll
Gustara sl. miðvikudagskvöld. Aðsókn var mjög góð, en um 200 manns mættu og fylgdust með Antoni sem fór vítt og breitt yfir sviðið
hvað varðar undirbúning og þjálfun hrossa, auk þess að kynna ýmsar vinnuaðferðir og búnað. Góður rómur var gerður
að kennslunni og áttu gestir notalega og fróðlega kvöldstund saman.
28.10.2009
Aðalfundur Kvennadeildar Fáks sem átti að vera í kvöld FRESTAST vegna veikinda.
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 2. okt. í félagsheimili Fáks og hefst hann kl. 20:00
23.10.2009
Hér fyrir neðan má sjá fréttir frá hestamannafélaginu Fák.
23.10.2009
Nýr vefur Félags hrossabænda hefur nú verið tekinn í gagnið á slóðinni www.fhb.is . Þar er að finna upplýsingar um
félagið og starfsemi þess, auk ýmis konar fróðleiks er varðar íslenska hestinn, bæði á íslensku og ensku.
22.10.2009
Nú liggja fyrir tilnefningar til knapaverðlauna sem veitt verða á Uppskeruhátíð hestamanna 7.nóv. 2009. Einnig verða veitt heiðursverðlaun
Landssamband hestamannafélaga.