Úrslit frá fimmgangi í KEA mótaröðinni

Nú er nýlokinni keppni í fimmgangi í KEA mótaröðinni. Á annan tug hesta mættu til leiks en eitthvað var um afskráningar vegna frestunar á mótinu.

Mikil stemming fyrir Stóðhestaveislum norðan og sunnan heiða

 Hrossarækt.is stendur fyrir stóðhestasýningum norðan og sunnan heiða í byrjun apríl. Föstudagskvöldið 1. apríl verður Stóðhestaveisla í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þar sem heiðurshestur sýningarinnar verður höfðinginn Kjarval frá Sauðárkróki.

Hagyrðingakvöld í andyri Rangárhallarinar 18.mars

 Föstudagskvöldið 18.mars verður hagyrðingakvöld í anddyri Rangárhallarinar á Hellu. Þjóðþekktir hagyrðingar mæta þar til að kveða vísur og annað skemmtilegt.

Skráningarfrestur úrtöku "Þeir allra sterkustu"

Úrtaka fyrir ístöltið „Þeir allra sterkustu“ verður haldin sunnudaginn 20.mars kl.20:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Átta efstu hestum í úrtöku verður boðið að taka þátt í Ístöltinu „Þeir allra sterkustu“ sem fer fram 2.apríl.

Skráning á opna Barkamótið

Barkamótið í Reiðhöllinni í Víðidal er orðið eitt vinsælasta töltmótið innanhúss. Á laugardaginn kemur, þann 19. febrúar fer mótið fram og að venju verður það glæsilegt í alla staði.

Orrasýningin 26.mars

Það verða stórbrotin hross sem mæta til leiks á Orrasýninguna þann 26. mars. Má þar meðal annars nefna Orm frá Dallandi, Ugga frá Bergi, Glímu frá Bakkakoti ofl. ofl. (fáið að kíkja í pakkann smátt og smátt).

Afkvæmahestar á Stóðhestaveislunni 19.mars

Nú fer að styttast í hina sívinsælu stóðhestaveislu Rangárhallarinnar og um að gera að ná sér í miða á sýningunna, miðar eru seldir í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippistofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi og Líflandi í Reykjavík.

Kosið í íþróttadómaranefnd FEIF

Reglulega kjósa FEIF alþjóðlegir íþróttadómarar fulltrúa í íþróttadómaranefnd FEIF (Sport judges committee).

Hestadagar í Reykjavík

Í tilefni af Hestadögum í Reykjavík sem verða 28. Mars – 2.apríl ætla Íshestar, hestaleiga og ferðaskrifstofa að vera með kynningu á starfsemi sinni og Hestadögum í Reykjavík , laugardaginn 19. mars  á Ingólfstorgi milli 14:00og 15:00. 

Stjörnutölt 2011

Stjörnutölt 2011 verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri, laugardaginn 19. mars kl. 20:30. Munu Barbara og Dalur frá Háleggsstöðum verja titil sinn frá því í fyrra?