25.03.2010
Gæðingadómarafélag LH auglýsir upprifjunar - og nýdómaranámskeið.
25.03.2010
Hér má sjá ráslista fyrir úrtöku Ístölts "Þeirra allra sterkustu" sem haldin verður í Skautahöllinni í
Reykjavík föstudaginn 26.mars. Úrtaka hefst kl.20:00. Þrír í hverju holli, riðið er eftir þul.
24.03.2010
Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við
æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.
24.03.2010
Það er ávallt nóg umleikis í skipulagningu Landsmóts síðustu mánuðina enda aðeins rétt um þrír mánuðir
þangað til veislan hefst. Að undanförnu hafa starfsmenn verið að ganga frá samningum er lúta að hinum ýmsu verkþáttum.
Í vikunni var gengið frá veigamiklum samningum varðandi veitingamálin og óhætt að fullyrða að fjölbreytnin verði í
fyrirrúmi í mat og drykk á Vindheimamelum í sumar.
24.03.2010
Á morgun verður keppt í fimmgangi í Meistaradeild VÍS í Ölfushöllinni. Keppnin hefst klukkan 19:30. Forsala aðgöngumiða er hafin í
verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi. Verð á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri.
24.03.2010
Minnum á að í dag er síðasti skráningadagur fyrir úrtöku Ístöltsins "Þeirra allra sterkustu". Efstu hestum úrtökunnar
verður boðið á Ístöltið. Skráning fer fram á www.gustarar.is og stendur til miðnættis. Úrtakan fer fram föstudaginn 26.mars
í Skautahöllinni í Laugardal og hefst kl.20:00.
23.03.2010
Búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgosins er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja
út hvítan disk. Verði vart við öskufall er mikilvægt að hýsa það búfé sem er við opin hús eða á
útigangi, sé það mögulegt.
23.03.2010
Þá er komið að fjórða og síðasta kvöldinu í KEA mótaröðinni. Mótaröðin hefur gengið frábærlega
vel og gaman hefur verið að fylgjast með þessari keppni.
23.03.2010
Forsala aðgöngumiða á STÓÐHESTAVEISLU 2010 hófst í morgun, en sýningin fer fram í Rangárhöllinni á Hellu laugardaginn 3.
apríl nk. kl. 14. Forsalan fer fram í Ástund í Reykjavík, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi og verslun Fóðurblöndunnar á
Hvolsvelli.
23.03.2010
Á stjórnarfundi LH 12.mars síðastliðinn var tekin sú ákvörðun að boða formenn hestamannafélga og formenn nefnda LH til fundar
26.mars næstkomandi í húsakynnum ÍSÍ við Engjaveg kl 13:00.