06.04.2010
Nú styttist í hið eina sanna Kvennatölt Gusts, en það fer fram í reiðhöllinni í Glaðheimum í Kópavogi laugardaginn 17.
apríl nk. Skráning fer fram á www.gustarar.is undir liðnum skráning dagana 9.-12. apríl nk. Boðið er upp á keppni í fjórum
styrkleikaflokkum að venju: Byrjendaflokki, minna vanar, meira vanar og opnum flokki.
04.04.2010
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi komu, sáu og sigruðu Ístölt „Þeirra allra sterkustu“ 2010. Þeir
félagar höfðu titil að verja en þeir sigruðu Ístölt „Þeirra allra sterkustu“ 2009. Þeir voru fyrstir inn á ísinn
í forkeppni, áttu feikna góða sýningu og fengu hæstu einkunn úr forkeppni 8,63. Halldór og Nátthrafn létu forystuna aldrei af
hendi, sýndu glæsilegt samspil og sigruðu með einkuninna 9,22.
01.04.2010
Hér má sjá ráslista fyrir Ístöltið "Þeirra allra sterkustu".
Minnum á forsölu aðgöngumiða í Líflandi laugardaginn 3.apríl. Opið er frá 9:00 til 15:00.
Einnig verða miðar seldir í anddyri Skautahallarinnar frá kl.18:00. Húsið opnar kl.19:00 og sýningin hefst kl.20:00.
31.03.2010
Það verða feikna sterkir hestar og knapar sem mæta á Ístölt “Þeirra allra sterkustu” sem fer fram í Skautahöllinni í
Laugardal laugardinn 3.apríl kl.20:00.
31.03.2010
Hin stórskemmtilega Dymbilvikusýning Gusts fer fram í reiðhöllinni í Kópavogi í kvöld kl. 20:30. Meginþema sýningarinnar eru
kynbótahross og meðal þess sem boðið er upp á verða stóðhestarnir Fróði frá Staðartungu og Mídas frá Kaldbak, Oddur
frá Selfossi með afkvæmum og ræktunarbúin Skeiðháholt, Friðheimar, Grænhóll og Hemla.
31.03.2010
Á stóðhestaveislunni 2010 í Rangárhöllinni 3. apríl verða seldir happadrættismiðar í happadrætti Meistaradeildar VÍS.
Miðasala fer einnig fram á tveimur síðustu mótum Meistaradeildar VÍS. Dregið verður úr seldum miðum á lokamóti deildarinnar.
31.03.2010
Nokkrir af þeim stóðhestum sem fram koma á Stóðhestaveislunni á Hellu verða sýndir með afkvæmum. Fyrir áhugafólk um
ræktun er alltaf spennandi að sjá afkvæmi og verður gaman að berja hópana augum.
31.03.2010
Stóðhesturinn Aron frá Strandarhöfði mætir á Ístölt „Þeirra allra sterkustu“ og sýnir listir sínar.
Óðssonurinn Aron hefur ekki komið fram í nokkur ár og ríkir því mikil eftirvænting að sjá klárinn en sýnandi hans
verður Hinrik Bragason. Óður hefur hæst hlotið 8.54 í aðaleinkunn, þar af 8.75 fyrir hæfileika.
30.03.2010
Happdrættismiðar til styrktar íslenska landsliðsins í hestaíþróttum eru nú til sölu í verslun Líflands að
Lynghálsi. Í vinning er folatollur undir engan annan en Álf frá Selfossi. Gefandi tollsins er Christina Lund.
30.03.2010
Úrtaka verður fyrir stórsýninguna "Fákar og fjör" þriðjudaginn 30. mars kl. 19:00. Ekki þarf að skrá sig, nóg að mæta
á staðinn.