27.04.2010
Truflanir hafa verið í uppfærslu á gagnagrunni netmiðasölukerfis Landsmóts uppá síðkastið og biðst Landsmót
velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur haft í för með sér.
27.04.2010
Föstudaginn 30.apríl næstkomandi standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttafræðasetur HÍ
fyrir ráðstefnu með yfirskriftinni "Starf íþróttaþjálfara". Ráðstefnan verður haldin í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl.13:00. Erlendir og íslenskir aðilar munu fjalla um íþróttaþjálfara
í víðu samhengi og velta upp fjölmörgum atriðum sem máli skipta í tengslum við starf íþróttaþjálfarans.
27.04.2010
Opið íþróttamót Mána og TM sem frestað var verður haldið dagana 15.-16. maí. Mótið er World Ranking mót. Skráning
á opið íþróttamót Mána og TM (*WR ) fer fram mánudaginn 10. maí. Skráningin fer fram í Mánahöllinni og í
símum milli kl 20-22. 893-0304 (Þóra) 861-0012 (Hrönn) 848-6973 (Þórir) 695-0049 (Jóhann) 866-0054 (Bjarni) 861-2030 (Snorri) 891-9757 (Haraldur). Keppt
verður í öllum flokkum og greinum ef næg þátttaka fæst.
27.04.2010
Sýningar á Suðurlandi verða að venju þrjár. Fyrsta sýningin verður í Víðidal í Reykjavík og hefst skráning
á hana næstkomandi fimmtudag 29. apríl. Hér fyrir neðan má síðan sjá hvenær teknar verða niður skráningar á
sýninguna á Sörlastöðum í Hafnarfirði og Gaddstaðaflötum við Hellu. Tvær dómnefndir verði að störfum á
Sörlastöðum og Hellu. Stefnt er að sýningu í Hornafirði ef næg þátttaka fæst, lágmarks skráning er 15 hross.
27.04.2010
Aðalfundur Skeiðfélgsins verður haldinn í kvöld klukkan 20:30 í Hlíðskjálf, félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á
Selfossi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
26.04.2010
Athygli er vakin á breyttum tímasetningum á Kappa námskeiðum. Námskeið verður haldið á Selfossi fimmtudaginn 29.apríl kl.20:00
í félagsheimili Sleipnis og i Reykjavík mánudaginn 3.maí kl.17:00 ÍSÍ húsinu.
26.04.2010
Forsölu aðgöngumiða á Landsmót lýkur 1. maí, en fjöldi hestamanna hefur nú þegar tryggt sér miða á verulegum
afslætti. „Já, forsala aðgöngumiða hefur gengið ljómandi vel, enda er fólk að spara sér umtalsverðar fjárhæðir, oft
þúsundir króna, með því að kaupa miða fyrirfram. Vikupassinn fyrir fullorðna kostar til dæmis 12 þúsund krónur í
forsölu og 4 þúsund krónur fyrir unglinga,“ segir Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Landsmóts 2010.
26.04.2010
Opna ALP/GÁK töltmótið fór fram í reiðhöllinni í Glaðheimum í gær. Þar var keppt í yngri flokkum og var
þátttaka ágæt, en fjöldi fólks fylgdist með keppninni um leið og það fékk sér kaffi og meðlæti hjá Kvennadeild
Gusts á efri hæðinni.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
26.04.2010
Erilsamt hefur verið hjá hjónunum Sigurði V. Matthíassyni og Eddu Rún Ragnarsdóttur í allan vetur, svo vægt sé til orða tekið,
enda þjálfa þau stíft fyrir kynbótasýningarnar sem framundan eru og úrtöku fyrir Landsmótið. Gestagangur er einnig mikill
því söluhrossin eru ófá sem renna í gegnum hesthúsið þeirra í Víðidalnum, auk þess sem kennslan tekur drjúgan
tíma. Spennandi hestar eru í húsinu.
21.04.2010
Þann 13. apríl síðastliðinn kom út ný útgáfa af Kappa og GagnaKappa, sem hægt er að nálgast á heimasíðu LH,
www.lhhestar.is. Frá þeim degi var eldri útgáfa Kappa ónothæf og því er mikilvægt að allir notendur uppfæri
hugbúnaðinn. Á næstu dögum og vikum verður Tölvunefnd LH með námskeið um notkun á Kappa. Mælt er eindregið með
því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið.