02.09.2010
Hér má sjá dagskrá Meistaramóts Andvara sem haldið verður 3. - 5. september á Kjóavöllum.
02.09.2010
Gæðingakeppni Léttis og Goða hefst á laugardag kl. 10:00 og hefst á tölti fullorðinna. Hér er dagsskrá mótsins og
ráslistar.
31.08.2010
Mikilvægt er að smalahross séu frísk þegar lagt er af stað og hafi ekki umgengist hross með einkenni smitandi hósta í a.m.k. 2 vikur (algengur
meðgöngutími sjúkdómsins).
30.08.2010
Stjórn og afmælisnefnd Félags Tamningamanna hefur ákveðið að fresta afmælishátíð félagsins. Áætlað er að
halda hátíðina í lok janúars 2011.
30.08.2010
Gæðingamót Léttis og Goða verður haldið dagana 3.-5. september 2010. Mótið er opið öllum.
29.08.2010
Veðrið lék við keppendur og áhorfendur á lokadegi Íslandsmóts. Fjöldi áhorfandi var í brekku og stúku og fylgdist með
frábærum íþróttasýningum okkar bestu knapa en A-úrslitum var sjónvarpað beint á RÚV. Veður og aðstæður
á mótsvæði voru hinar bestu alla mótsdagana.
29.08.2010
Eftir A úrslit í fjórgangi í dag voru afhent verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur í fjórgangs- og fimmgangsgreinum í
forkeppni á Íslandsmóti. Það var Sörlafélaginn Eyjólfur Þorsteinsson sem gerði sér lítið fyrir og vann báða
þessa titla
28.08.2010
Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal eru Íslandsmeistarar í fimmgang 2010.
28.08.2010
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra Hofi eru Íslandsmeistarar í tölti.
28.08.2010
Mette Mannseth og Happadís frá Stangarholti eru sigurveigarar í fjórgangi á ÍM 2010, en þar sem hún er erlendur ríkisborgari getur
hún ekki verið Íslandsmeistari. Íslandsmeistari í fjórgangi er Elvar Þormarsson og glæsihryssan Þrenna frá
Strandarhjáleigu.