Landsliðið stóðst allar kröfur fagaðila

Það var glatt á hjalla á Grænhóli á Suðurlandinu í dag hjá þeim Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur en þangað var íslenska landsliðið mætt ásamt hestakosti sínum, einvaldi, liðsstjórum og liðsmönnum landsliðsnefndar. 

Gæðingamót Sleipnis

Gæðingamót Sleipnis hefst á morgun föstudag. Mikil skráning er á mótið eða 228 skráningar.

Dýralæknisskoðun hrossanna fyrir HM09

Dýralæknisskoðun hrossanna sem fara fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramót íslenska hestsins mun fara fram í dag, fimmtudaginn 23. júlí, kl.14:00 í Grænhól í Ölfusi hjá þeim hjónum Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur.

Einvaldur sló á létta strengi

Kynning á íslenska landsliðinu í hestaíþróttum fór fram í gær, þriðjudaginn 21.júlí, í húsakynnum hestavöruverslunarinnar Líflands að Lynghálsi.

Leiðin að gullinu

Lífland og Landssamband hestamannafélaga hafa staðið fyrir fjáröflun fyrir íslenska landsliðið í hestaíþróttum í formi happdrættis. Útbúnir voru sérstakir bolir sem báru heitið „Leiðin að gullinu“ og á þá var prentað happdrættisnúmer.  

Hestaþing Loga 2009

Hestaþing Loga verður haldið í Hrísholti 1. og 2. ágúst Áætluð dagskrá: Laugardaginn 1. ágúst   Forkeppni í gæðingakeppni Loga.  

Landsliðseinvaldur tilkynnti landsliðið í dag

Einar Öder Magnússon landsliðseinvaldur hefur tilkynnt landslið Íslands í hestaíþróttum sem keppir á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss dagana 3.-9. ágúst.

Landslið Íslands í hestaíþróttum tilkynnt

Þriðjudaginn 21. júlí kl.16:00 í verslun Líflands að Lynghálsi 3 verður íslenska landsliðið í hestaíþróttum tilkynnt. Heimsmeistarmót íslenska hestsins er að venju beðið með mikilli eftirvæntingu en það er haldið annaðhvert ár og að þessu sinni er það haldið í Brunnadern, Sviss, dagana 3.- 9.ágúst.

Viðar Ingólfsson Íslandsmeistari í tölti

Úrslitin í tölti á Íslandsmótinu í hestaíþróttum voru sannkölluð veisla fyrir augað. Það var Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi sem bar sigur úr býtum með einkunnina 9,00. Þeir félagar mættu feikna sterkir til leiks í úrslitunum og fengu meðal annars 9,5 í einkunn fyrir hraðabreytingar.

Daníel Jónsson Íslandsmeistari í fimmgangi

Það var Daníel Jónsson á Tón frá Ólafsbergi sem sigraði A-úrslit í fimmgangi á Íslandsmótinu í hestaíþróttum. Þeir hlutu einkunnina 7,88.