08.04.2011
Frestur til skráningar á ungfolasýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í Ölfushöllinni er framlengdur til fimmtudagskvölds.
08.04.2011
Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum ef næg þáttaka
fæst lágmark 14 manns þurfa að skrá sig á námskeiðið.
07.04.2011
Nýtt í kortasjánni er að krækja (linkur) er beint á reiðleiðir í Dölum og Rangárþingi ytra þ.e. heimasíður
Glaðs og Geysis. Í kortasjánni eru Dala- og Rangárvallasýsla skyggðar, ef farið er með bendilinn á þær opnast gluggi,
þaðan er greið leið á reiðleiðir sem þar eru.
07.04.2011
Í kvöld í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, fer fram Lokamót Meistaradeildarinnar þar sem keppt verður í slaktaumatölti og skeiði
í gegnum höllina. Mótið hefst kl 19:00 á slaktaumatölti og að því loknu verður keppt í skeiði í gegnum höllina.
07.04.2011
Kaffihúsið í reiðhöllinni er notalegur viðkomustaður í Víðidalnum. Félagsskapurinn er góður og þar fást
léttar veitingar á góðu verði hjá henni Rebekku og svo er alltaf hægt að skjótast og horfa á fréttirnar í
sjónvarpshorninu.
07.04.2011
Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn 14. apríl nk. í félagsheimili Fáks. Fundurinn hefst kl. 20:00 og eru félagsmenn hvattir
til að mæta.
07.04.2011
Hin gríðarvinsæla Stóðhestaveisla fer fram í Ölfushöllinni á laugardaginn kemur. Fullt var út úr dyrum á
Stóðhestaveislu í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki sl. föstudagskvöld og almenn ánægja með það sem
þar bar fyrir augu.
06.04.2011
Austurríki og íslenski hesturinn í allri sinni dýrð! Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í St.Radegund/Austurríki
dagana 1.-7. ágúst 2011.
06.04.2011
Aðfaranótt 5. apríl var brotist inn í hesthús á Selfossi og þaðan teknir 6 hnakkar ásamt miklu magni af beislum, múlum og öðrum
fylgihlutum.
06.04.2011
Skráning á Opna íþróttamót Mána (WR) verður í kvöld miðvikudag 6 apríl í Mánahöllinni og í
síma milli kl 20 og 22. Einnig verður tekið á móti skráningum á netfangið mani@mani.is.
Skráningargjald er kr 3.500 á grein. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum ef næg þátttaka næst en annars
verða flokkar sameinaðir.
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum.
Þeir sem hringja eða senda póst þurfa að láta kortanúmer og gildistíma korts fylgja.
Símar til að hringja í á miðvikudagskvöldið eru:
695-0049
866-0054
861-0012
861-2030
848-6973
869-3530