Fréttir: Október 2018

Uppskeruhátíð hestamanna 2018

29.10.2018
Fréttir
Uppskeruhátíð hestamanna var haldin á Gullhömrum þann 27. október. Hátíðin fór vel fram með hefðbundinni dagskrá, Kenneth Máni kom og kitlaði hláturtaugarnar en hápunkturinn var þegar íþróttamenn okkar og heiðursverðlaunahafar voru verðlaunaðir.

Hringur fékk æskulýðsbikarinn 2018

18.10.2018
Fréttir
Æskulýðsbikarinn er veittur því hestamannafélagi sem þykir hafa skarað framúr með sínu starfi að æskulýðsmálum. Valið byggir á ársskýrslum æskulýðsnefnda félaganna, sem sendar eru inn til æskulýðsnefndar LH á haustin og hefur nefndin það verkefni að velja bestu skýrsluna.

Tilnefningar til knapa ársins

18.10.2018
Fréttir
Á uppskeruhátíð hestamanna þann 27. október næstkomandi munu afreksknapar hljóta verðlaun fyrir árangur sinn. Hér má sjá tilnefningar valnefndar um knapaval fyrir árið 2018.

Miðasala á Uppskeruhátíð hestamanna

15.10.2018
Fréttir
Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin hátíðleg laugardaginn 27.október í Gullhömrum Grafarholti. Miðasala er á skrifstofu LH milli 10:00 og 16:00 virka daga á skrifstofu LH Íþróttamiðstöðinni Laugardal Engjavegi 6, önnur hæð. 104 Reykjavík Miðasala er einnig á netfanginu uppskera2018@gmail.com Athugið að lokadagur miðasölu er mánudaginn...

61. landsþingi slitið og ný stjórn mynduð

13.10.2018
Fréttir
Landsþingi LH er lokið í Giljaskóla á Akureyri. Þingsstör gengu vel fyrir sig í dag og í lok fundar voru kosningar. Lárus Ástmar Hannesson var endurkjörinn formaður sambandsins og mikið af nýju fólki kom inn í bæði aðal- og varastjórn.

Þingslitafagnaður í Skeifunni

13.10.2018
Fréttir
Í kvöld blása Léttismenn til þingslitafagnaðar í Skeifunni, veislusal félagsins í reiðhöllinni. Húsið opnar kl. 19:30 og á boðstólum verður dýrindis matur frá Bautanum, skemmtiatriði og húllumhæ. Sjáumst í kvöld!

Landsþing hafið á Akureyri

12.10.2018
Fréttir
61. landsþing LH er hafið hér í Giljaskóla á Akureyri. Gríðarlega vel er tekið á móti þingfulltrúunum sem koma alls staðar að af landinu. Mjög góð mæting er á þingið eða alls 172 fulltrúar af 181 sem rétt hafa til að sækja þingið.

Aðalfundur GDLH

04.10.2018
Aðalfundur GDLH verður haldinn fimmtudaginn 18. október klukkan 18:00 í húsakynnum ÍSÍ. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Framboð til stjórnar LH

02.10.2018
Framboðsfresti til sambandsstjórnar LH lauk föstudaginn 28. september s.l. og nú birtir kjörnefnd lista yfir frambjóðendur til formanns, aðalstjórnar og varastjórnar.