Fréttir: Apríl 2016

Staðarhaldari - umsóknarfrestur til fimmtudags.

18.04.2016
Landssamband hestamannafélaga auglýsir eftir umsjónarmanni með ferðaþjónustu sambandsins á Skógarhólum.

Folatollar á 25.000 kr!

18.04.2016
Já það er ótrúlegt! En satt. Við eigum nokkra folatolla undir 1. verðlauna stóðhesta. Þetta eru folatollar frá ræktendum og stóðhestaeigendum sem styrktu íslenska landsliðið með því að gefa toll. Fyrstir koma fyrstir fá.

Meistari meistaranna - 5g

15.04.2016
Í dag kynnum við knapa og hesta sem keppa í fimmgangi á morgun í æsispennandi keppni milli meistara landsins úr mótaröðum vetrarins.

Meistari meistaranna - tölt

14.04.2016
Fréttir
Í dag kynnum við knapa og hesta sem keppa í tölti á morgun í æsispennandi keppni milli meistara landsins úr mótaröðum vetrarins.

Starfsskýrslur ÍSÍ

13.04.2016
Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá rennur frestur til að skila starfsskýrslum til ÍSÍ út 15. apríl næstkomandi. Vegna umfangsmikilla endurbóta sem nú standa yfir á félagakerfinu er mikilvægt að starfsskýrsluskil verði kláruð tímanlega að þessu sinni svo hægt sé að hefja undirbúning að innleiðingu á uppfærslunum í sumar.

Meistari meistaranna - slaktaumatölt

13.04.2016
Fimm af átta deildum landsins keppa í slaktaumatölti og því verða það fimm knapar sem etja saman hestum sínum í úrslitum í hver verður Meistari Meistaranna 2016 í slaktaumatölti.

Hrímnistölt

12.04.2016
Þann 20. apríl verður þriðja og síðasta mótið í Hrímnis-mótaröðinni, og er það að þessu sinni tölt T3.

Meistari meistaranna - fjórgangur

12.04.2016
Fréttir
Nú styttist í eitt mest spennandi mót vetrarins – Meistari Meistaranna 2016 - sem haldið verður í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 15 apríl kl. 19:00.

Viðtöl frá lokakvöldi Uppsveitardeildar

11.04.2016
Uppsveitadeild Loga, Smára og Trausta 2016, lauk um helgina með glæsilegri skeiðkeppni og fullu húsi áhorfenda.