Hrímnistölt

12. apríl 2016

 

Þann 20. apríl verður þriðja og síðasta mótið í Hrímnis-mótaröðinni, og er það að þessu sinni tölt T3. Mótið byrjar kl 18:00 og að móti loknu verður smá lokahóf í Harðarbóli. Þar munum við veita stigahæðstu knöpum viðurkenningu.

Skráning er hafin á http://skraning.sportfengur.com og er skráning út mánudaginn 18. apríl. Hver skráning kostar 2.000kr, veglegir vinningar eru í boði fyrir þrjú efstu sætin. Vinningar eru eftirfarandi:

1. verðlaun á öllum mótunum er hin frábæra ReFlect ábreiða frá Hrímni :
http://hrimnir.is/2015/acc-reflectrug.html
2. verðlaun Heritage kristals höfuðleður og taumur með Hrímnismélum.
3. verðlaum Loki eða Lilja jakki
Hlökkum til að sjá sem flesta!!