Meistari meistaranna - fjórgangur

12. apríl 2016
Fréttir

Nú styttist í eitt mest spennandi mót vetrarins – Meistari Meistaranna 2016 - sem haldið verður í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 15 apríl kl. 19:00.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að úrslit eru riðinn í hverri grein og eru það sigurvegarar í úr mótaröðum sem haldnar hafa verið í vetur á landinu sem hafa keppnisrétt.

Í dag kynnum við til leiks þá sem keppa í fjórgangi.

Fjórgangurinn verður hrikalega sterkur og til leiks mæta:

Vesturlandsdeildin : Berglind Ragnarsdóttir og Frakkur frá Laugavöllum
Kea Mótaröðin : Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum
Húnverska mótaröðin : Jessie Huijbers og Hátíð frá Kommu
Uppsveitardeildin : Þórarinn Ragnarsson og Hringur frá Gunnarsstöðum
KB Mótaröðin : Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal
Gluggar og Glerdeildin : Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Fífill frá Feti
Meistaradeildin : Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey
KS deildin : Artemisa Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli

Hvetjum alla til að taka kvöldið frá og koma í Samskipahöllina til að sjá alla helstu sigurvegara í mótaröðum landsins keppa um titilinn Meistari Meistaranna. Húsið opnar kl. 17:30 og í boði verða léttar veitingar á mjög góðu verði að hætti Sprettara. Aðgangseyrir er kr. 1000 pr. mann