Starfsskýrslur ÍSÍ

13. apríl 2016

Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá rennur frestur til að skila starfsskýrslum til ÍSÍ út 15. apríl næstkomandi.

Vegna umfangsmikilla endurbóta sem nú standa yfir á félagakerfinu er mikilvægt að starfsskýrsluskil verði kláruð tímanlega að þessu sinni svo hægt sé að hefja undirbúning að innleiðingu á uppfærslunum í sumar. Af þessum sökum hefur verið ákveðið að strax í maí nk. verður keppnisbanni beitt á þau félög sem ekki hafa skilað skýrslu eða samið um frest, eins og heimilt er skv. 8. grein í lögum ÍSÍ.

Starfsskýrsla til ÍSÍ inniheldur iðkenda- og félagatal, upplýsingar um núverandi stjórn og lykiltölur úr ársreikningi síðasta rekstrarárs. Skýrslunni er í öllum tilfellum skilað í gegnum Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ.

Skrifstofa ÍSÍ getur veitt stuttan frest á skilum á ársreikningi, ef hann liggur ekki fyrir þegar skilafrestur rennur út en félögin þurfa að sækja um slíkan frest til ÍSÍ í samráði við viðkomandi héraðssamband/íþróttabandalag. Hægt er að sækja um stuttan frest, á skilum á ársreikningi, til skrifstofu ÍSÍ, með því að senda tölvupóst á netfangið oskar@felix.is eða halla@isi.is.

ATHUGIÐ! Ekki verður veittur frestur á skilum á félaga- og iðkendahluta starfsskýrslunnar. Þau félög sem ekki eru tilbúin með ársreikning sinn verða að ganga frá iðkenda- og félagatali og stjórnarupplýsingum í starfsskýrslunni, loka þeim hlutum skýrslunnar og sækja um frest á skilum á ársreikningshlutanum.

Nánari upplýsingar gefur Óskar Örn Guðbrandsson í síma 514-4000 eða í gegnum netfangið oskar@felix.is.