Fréttir: Mars 2010

Hestar og Knapar á Ístölti “Þeirra allra sterkustu”

31.03.2010
Fréttir
Það verða feikna sterkir hestar og knapar sem mæta á Ístölt “Þeirra allra sterkustu” sem fer fram í Skautahöllinni í Laugardal laugardinn 3.apríl kl.20:00.

Minnum á Dymbilvikusýninguna í kvöld!

31.03.2010
Fréttir
Hin stórskemmtilega Dymbilvikusýning Gusts fer fram í reiðhöllinni í Kópavogi í kvöld kl. 20:30. Meginþema sýningarinnar eru kynbótahross og meðal þess sem boðið er upp á verða stóðhestarnir Fróði frá Staðartungu og Mídas frá Kaldbak, Oddur frá Selfossi með afkvæmum og ræktunarbúin Skeiðháholt, Friðheimar, Grænhóll og Hemla.

Happadrætti Meistaradeildar VÍS

31.03.2010
Fréttir
Á stóðhestaveislunni 2010 í Rangárhöllinni 3. apríl verða seldir happadrættismiðar í happadrætti Meistaradeildar VÍS. Miðasala fer einnig fram á tveimur síðustu mótum Meistaradeildar VÍS. Dregið verður úr seldum miðum á lokamóti deildarinnar.

Álfur ofl. með afkvæmum á Stóðhestaveislu

31.03.2010
Fréttir
Nokkrir af þeim stóðhestum sem fram koma á Stóðhestaveislunni á Hellu verða sýndir með afkvæmum. Fyrir áhugafólk um ræktun er alltaf spennandi að sjá afkvæmi og verður gaman að berja hópana augum.

Aron frá Strandarhöfði mætir á Ístölt

31.03.2010
Fréttir
Stóðhesturinn Aron frá Strandarhöfði mætir á Ístölt „Þeirra allra sterkustu“ og sýnir listir sínar. Óðssonurinn Aron hefur ekki komið fram í nokkur ár og ríkir því mikil eftirvænting að sjá klárinn en sýnandi hans verður Hinrik Bragason. Óður hefur hæst hlotið 8.54 í aðaleinkunn, þar af 8.75 fyrir hæfileika.

Viltu vinna foltatoll undir Álf frá Selfossi?

30.03.2010
Fréttir
Happdrættismiðar til styrktar íslenska landsliðsins í hestaíþróttum eru nú til sölu í verslun Líflands að Lynghálsi. Í vinning er folatollur undir engan annan en Álf frá Selfossi. Gefandi tollsins er Christina Lund.

Úrtaka fyrir "Fákar og Fjör"

30.03.2010
Fréttir
Úrtaka verður fyrir stórsýninguna "Fákar og fjör" þriðjudaginn 30. mars kl. 19:00. Ekki þarf að skrá sig, nóg að mæta á staðinn.

Innbrot í hesthús við Hlíðarþúfur í Hafnarfirði

30.03.2010
Fréttir
Aðfararnótt sunnudagsins 28 mars var brotist inn í hesthús við Hlíðarþúfur í Hafnarfirði. Þjófarnir höfðu á brott með sér fimm hnakka, nokkur beisli og önnur reiðtygi ásamt 5 hjálmum. Tjónið er að sjálfsögðu tilfinnanlegt fyrir eigendurnar sem ekki eru tryggðir sérstaklega vegna reiðtygjanna eða innbrots í hesthús.  

Ver Nátthrafn titilinn?!

29.03.2010
Fréttir
Nátthrafn frá Dallandi sigurvegari  Ístölts „Þeirra allra sterkustu“ 2009 mætir til leiks á laugardaginn, 3.apríl, í Skautahöllina í Laugardal og freistar þess að verja titilinn.