Minnum á Dymbilvikusýninguna í kvöld!

31. mars 2010
Fréttir
Hin stórskemmtilega Dymbilvikusýning Gusts fer fram í reiðhöllinni í Kópavogi í kvöld kl. 20:30. Meginþema sýningarinnar eru kynbótahross og meðal þess sem boðið er upp á verða stóðhestarnir Fróði frá Staðartungu og Mídas frá Kaldbak, Oddur frá Selfossi með afkvæmum og ræktunarbúin Skeiðháholt, Friðheimar, Grænhóll og Hemla. Hin stórskemmtilega Dymbilvikusýning Gusts fer fram í reiðhöllinni í Kópavogi í kvöld kl. 20:30. Meginþema sýningarinnar eru kynbótahross og meðal þess sem boðið er upp á verða stóðhestarnir Fróði frá Staðartungu og Mídas frá Kaldbak, Oddur frá Selfossi með afkvæmum og ræktunarbúin Skeiðháholt, Friðheimar, Grænhóll og Hemla. Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu keppa líka sín á milli um hverjir eigi flottasta ræktunarhópinn og íþróttamaður Gusts verður heiðraður ofl. ofl. Veitingasalan á efri hæðinni verður opin og tilvalið að hitta sýnendur og ræktendur eftir sýningu og eiga góða stund saman. Miðaverð er aðeins kr. 1.500 og verða miðar seldir í forsölu í síma 865 9637 frá kl. 12 í dag og svo opnar húsið kl. 19 og verða miðar seldir við innganginn.
Gustarar bjóða alla velkomna á þessa léttu og skemmtilegu sýningu - góð leið til að byrja páskafríið!