Fréttir: Júní 2013

Áríðandi tilkynning vegna úrtöku/Gullmóts

06.06.2013
Fréttir
LH vill benda á að samkvæmt FIPO reglunum má ekki nota 300m völlinn þegar leggja skal á skeið í fimmgangi. Á úrtöku og Gullmóti verður farið eftir FIPO og fimmgangurinn verður því ALLUR riðinn á 250m vellinum og ekki leyfilegt að skeiðleggja á langhliðum lengri vallarins.

Úrtaka/Gullmót - skráningarfrestur til 16 í dag

06.06.2013
Fréttir
Þar sem Skýrr var að uppfæra kerfið hjá sér og Sportfengur fór úr sambandi er skráningafrestur framlengdur til Kl: 16:00 6 júní. Ekki missa af glæsilagasta móti ársins Gullmótinu og Úrtöku fyrir HM Berlín sem haldið er dagana 11 – 15 júní n.k á félagssvæði Fáks Víðidal.

HM 2013 í Berlín - Örfá sæti laus!

04.06.2013
Fréttir
HM ÍSLENSKA HESTSINS verður haldið í Berlín 4.-12. ágúst 2013. Úrval Útsýn er að sjálfsögðu með ferðir á þennan frábæra viðburð í heimsborginni Berlín. Fyrsta ferðin seldist upp á mettíma. Örfá sæti eru hins vegar laus í sambærilega ferð 6.-13.ágúst - þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Gæðingakeppni Dreyra - úrslit

04.06.2013
Fréttir
Hestamannafélagið Dreyri hélt sína árlegu gæðingakeppni laugardaginn 1. júní sl. Að þessu sinni var keppnin jafnframt úrtaka fyrir Fjórðungsmót Vesturlands, sem haldið verður að Kaldármelum dagana 3.-7. júlí.

Skráningarfrestur á Gullmót framlengdur

03.06.2013
Fréttir
Gullmótið mun framlengja skráningu til miðnættis 5.júní. Hestamannafélagið Sörli heldur punktamót miðvikudaginn 5.júní. Tækifæri til að ná sér í punkta fyrir Gullmótið og Íslandsmót.

Fjórgangur-fimmgangur Geysi

02.06.2013
Íþróttamót Gaddstaðaflötum

Gæðingakeppni Léttis

01.06.2013
Hlíðarholti 1.-2. júní

Gæðingakeppni Dreyra

01.06.2013
Æðarodda