Skráningarfrestur á Gullmót framlengdur

03. júní 2013
Fréttir
Gullmótið mun framlengja skráningu til miðnættis 5.júní. Hestamannafélagið Sörli heldur punktamót miðvikudaginn 5.júní. Tækifæri til að ná sér í punkta fyrir Gullmótið og Íslandsmót.

Gullmótið mun lengja skráningu til miðnættis 5. Júní.
Hestamannafélagið Sörli heldur punktamót miðvikudaginn 5.júní.  Tækifæri til að ná sér í punkta fyrir Gullmótið og Íslandsmót.


Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi, tölti, slaktaumatölti og gæðingaskeiði ( einn flokkur ) Engin úrslit.
Engin lágmörk fyrir HM úrtöku
Engin lágmörk í 2.flokki
Lágmarkseinkunn er 5,5 í unglinga og ungmennaflokki
Lágmarkseinkunn er 6,0 í opnum flokki
Allar skeiðgreinar opnar engin lágmörk

Einn knapi á vellinum í ungl. ungm. og opnum fl, þrír knapar í 2.fl

Skráning fer fram inn á http://sportfengur.com
Þegar skráð er veljið þá Gullmótið hestamannamót í flipanum.

Frekari uppl í síma 893-3559 eða ddan800@gmail.com