HM 2013 í Berlín - Örfá sæti laus!

04. júní 2013
Fréttir
HM ÍSLENSKA HESTSINS verður haldið í Berlín 4.-12. ágúst 2013. Úrval Útsýn er að sjálfsögðu með ferðir á þennan frábæra viðburð í heimsborginni Berlín. Fyrsta ferðin seldist upp á mettíma. Örfá sæti eru hins vegar laus í sambærilega ferð 6.-13.ágúst - þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Eins og svo oft áður, þá er Úrval-Útsýn í samvinnu við LH og landsliðið með ferðir á mótið. Fyrir utan venjulega hefðbundna dagskrá mótsins, þá verður sérdagskrá fyrir farþega Úrvals Útsýnar. Meðal annars verður kokteill við komu til Berlínar, farið í skoðunarferð um Berlín, og ýmsir “spekingar” svo sem Sigurður Sæmundsson, Eysteinn Leifsson og Hafliði Halldórsson ásamt fleirum munu spá í framvindu mótsins með okkar farþegum.

Innifalið í ferðinni er flug, skattar, flugvallarakstur, gisting með morgunmat og miðar í yfirbyggðri stúku. Að auki verður farin skoðunarferð um Berlín, nokkri vel valdir "spekingar" spá í spilin með okkar farþegum og svo ætlar Helgi Björns að skemmta okkar farþegum eina kvöldstund á hótelinu. Mun hann sennilega flytja nokkur vel valin "Reiðmannalög"
Ferðina er hægt að bóka á urvalutsyn.is, í síma 585-4000 eða á netfangið liljab@uu.is

Sjá nánar hér