Fréttir: Maí 2010

Úrtaka hjá Létti

26.05.2010
Fréttir
Úrtaka hjá hestamannafélaginu Létti, Akureyri, verður haldin 5. júní á Hlíðarholtsvelli í Lögmannshlíð.  Við munum halda 2 úrtökur, 5. júní og líklega 19. júní. A.T.H. að í þetta sinn verður einungis riðin forkeppni. Við munum líklega ríða úrslit í seinni úrtökunni.

Kynbótasýningar á Gaddstaðaflötum

26.05.2010
Fréttir
Enn hefur verið ákveðið að framlengja skráningarfrest á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum við Hellu. Síðasti skráningardagur verður fimmtudagurinn 27. maí.  Bændasamtök Íslands hafa gefið leyfi til að sýningin standi til 18. júní.

Kortasjá - reiðleiðir

26.05.2010
Fréttir
Eins og glöggir lesendur heimasíðu LH hafa tekið eftir þá er kominn gluggi efst til hægri á heimasíðuna, Íslandskort yfirskrifað Kortasjá – reiðleiðir, hér er viðmót kortasjárinnar mun betra en var áður á heimasíðunni. Fyrirhugað er að fljótlega bætist við reiðleiðir á suður- og vesturlandi auk reiðleiða á hálendinu og svo koll af kolli eftir því sem efni og aðstæður leyfa.

Ágætu formenn hestamannafélaga!

25.05.2010
Fréttir
Landssamand hestamannafélaga boðar til formannafundar föstudaginn 28.maí n.k. kl 13:00 í húsakynnum ÍSÍ Laugardal. Fundarefni: Landsmót 2010 á Vindheimamelum.

Skeiðleikum 2 frestað

25.05.2010
Fréttir
Skeiðleikum 2 sem halda átti samhliða Gæðingamóti Fáks næsta laugardag hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Stefnt er á að halda Skeiðleika 3, á Selfossi, þriðjudaginn 15. júní eins og áður hefur verið auglýst en þar verður keppt í tölti, 250m, 150m og 100m skeiði.

Tilkynning - kynbótasýningar Sörlastöðum

22.05.2010
Fréttir
Gríðarlegt brottfall hefur orðið á Sörlastaðasýningunni, í upphafi voru skráð um 200 hross og þegar hollaröðun var birt á þriðjudagskvöldið voru hrossin komin í 140.

Forsendur fyrir áframhaldandi undirbúningi Landsmóts

22.05.2010
Fréttir
21. maí 2010Nú þegar smitandi hósti hefur herjað á hrossastofninn í vel á þriðja mánuð hafa safnast umtalsverðar faraldsfræðilegar upplýsingar um útbreiðslu sjúkdómsins og sjúkdómsferilinn auk upplýsinga um áhrif hans á heilsu hrossa til lengri og skemmri tíma. Út frá þeim má ráða ýmislegt um orsakir sjúkdómsins og hvernig faraldurinn muni þróast.

Smitandi hósti í hrossum – stöðumat 20. maí

22.05.2010
Fréttir
Dýralækni hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun var tilkynnt um smitandi hósta í hrossum á Hólum í Hjaltadal og tveimur nágrannabæjum hinn 7. apríl sl. Þeirri tilkynningu fylgdu upplýsingar um að veikin hefði sennilega verið í gangi í tvær til þrjár vikur og hugsanlega lengur. Öruggustu tilfellin voru hestar sem komu til Hóla nokkru fyrir páska (um miðjan mars) og var veikin mjög greinilega að breiðast út frá þeim. Við athugun kom í ljós að veikin var á sama tíma komin á margar stórar tamningastöðvar á Suðurlandi, í  a.m.k. eitt hesthús í Reykjavík (smitið barst með hesti sem kom í húsið 7. mars) og annað í Keflavík. Allar þessar tamningastöðvar, þ.m.t.  Hólar, höfðu tengsl við tiltekna þjálfunarmiðstöð og höfðu tekið við hestum þaðan fyrir eða um páska. Á þeirri þjálfunarmiðstöð var ekki að hafa nákvæmar upplýsingar um hvenær fyrst hafði orðið vart við hesta með einkenni veikinnar né hvernig hún hefði hugsanlega borist þangað.

Fundur með hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar

21.05.2010
Fréttir
Í dag fór fram fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu með öllum hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar. Tilgangur fundarins var að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar svonefndu. Síðast liðinn mánudag skipaði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir nefnd, en í henni eiga sæti Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Sveinn Ólason dýralæknir. Þau hafa verið að safna öllum tiltækum upplýsingum um veikina og kynnti Sigríður helstu niðurstöður á rannsóknum þeirra og veitti ráðgjöf í ljósi þeirra.