Fréttir: Maí 2010

Skráningar á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum

21.05.2010
Fréttir
Enn er allt í óvissu hvort Landsmóti verði frestað eða ekki. Búnaðarsambandið hefur því ákveðið að framlengja skráningarfrestinn á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum til þriðjudagsins 25. maí. Vonandi verður þá búið að taka ákvörðun um hvort og hvenær Landsmót verður. Hollaröðun mun að öllu óbreyttu ekki verða birt fyrr en föstudaginn 28. maí. Röðin verður birt á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands www.bssl.is.

TIlkynning frá GDLH

20.05.2010
Fréttir
Ágætu hestamenn! Það hefur ekki farið framhjá neinum sem stunda hestamennsku að sú flensa sem gengur í hrossastofninum hefur þegar haft slæm áhrif á hestamennskuna á allan máta. Úrtökum og mótum hefur verið frestað á flestum stöðum og fæst þeirra dagsett á ný.  Því er ljóst að mikið verður um mót og úrtökur þegar líður fram í júní og gæti orðið erfitt að finna dómara á öll mót  ef þau verða mjög þétt. 

Fulltrúar framboðsflokkanna í Top Reiter höllinni

20.05.2010
Fréttir
Léttir býður fulltrúum framboðsflokkanna á fund í Top Reiter höllinni, miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Fulltrúar allra framboðsflokkanna eru velkomnir á fundinn. Hestamenn fjölmennum á fundinn og sýnum málefnum okkar áhuga.

Hollaröðun á kynbótasýningunni á Sörlastöðum

19.05.2010
Fréttir
Hollaröðun á héraðssýningu kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagan 25.- 27. maí 2010. Knapar að fylgjast vel með breytingum sem kunna að verða á hollaröðuninni vegna forfalla. Á þriðjudaginn 25. maí hefjast dómar kl. 12.30 og verður ein dómnefnd við störf þann dag. Miðvikudag og fimmtudag (26. og 27. maí) hefjast dómstörf kl. 8.00 og þá verða tvær dómnefndir að störfum. Yfirlitssýning verður svo föstudaginn 28. maí n.k. Tímsetning nánar auglýst síðar.

Fræðslufundur um kvefpestina

19.05.2010
Fréttir
Fræðslufundur um kvefpestina sem geisar í hrossastofninum þessa dagana verður á fimmtudagskvöldið kl. 20:30 í Reiðhöllinni. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma mun og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir munu halda erindi og svara fyrirspurnum um veikina. Staður: Reiðhöllin í Víðidal Tími: Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.30 Frítt inn og allir velkomnir – veitingar seldar á staðnum. Í dag (miðvikudag) er Hreinsunardagur Fáks og hefst hann kl. 17:30. Fólk er hvatt til að koma og hjálpa okkur að gera svæðið snyrtilegt í kringum okkur. Ruslapokar verða afhentir og gámar verða staðsettir við félagsheimilið og upp í Víðidal. Hestamannafélagið Fákur.

Gangmyllan gefur út stóðhestabækling

19.05.2010
Fréttir
Gangmyllan á Syðri-Gegnishólum hefur gefið út bækling til kynningar á stóðhestum búsins. Bæklingurinn sem er 12 síður litprentaður kynnir tíu stóðhesta úr ræktun þeirra Bergs Jónssonar og Olil Amble sem búa á Syðri-Gegnishólum.

Íslenskir unglingar á FEIF Youth Cup

18.05.2010
Fréttir
FEIF Youth Cup er haldið annað hvert ár og að þessu sinni verður mótið haldið í Kalø í Danmörku 10.-18. júlí 2010. Íslenski hesturinn, liðsheild og alþjóðleg menning eru einkennisorð mótsins. Þar gefst unglingum og ungmennum á aldrinum 14-17 ára víðsvegar að úr heiminum kostur á að koma saman og keppa í hestaíþróttum. 

Forseti ÍSÍ kjörinn forseti FIBA Europe

18.05.2010
Fréttir
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ og fyrrum formaður Körfuknattleikssambands Íslands, var nú á dögunum kjörinn nýr forseti FIBA Europe. FIBA Europe, Körfuknattleikssamband Evrópu, er eitt af stærstu íþróttasamböndum í heiminum og er óhætt að fullyrða að þetta embætti er hið stærsta sem íslenskur forystumaður innan íþróttahreyfingarinnar hefur gengt á erlendum vettvangi.

Úrtökur fyrir Landsmót

17.05.2010
Fréttir
,,Fólk þarf að sýna þessu ástandi skilning, framkvæmdaraðilar, mótshaldarar og allir þeir sem koma að mótahaldi gera sitt besta hverju sinni í þessari óvenjulegu stöðu sem nú er“ segir Sigurður Ævarsson mótsstjóri Landsmóts.