Fréttir: Maí 2010

Samningur um hnitun reiðleiða og landfræðilega kortasjá

17.05.2010
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga (LH) og Loftmyndir ehf. hafa undirritað samning um afnot af landfræðilegum gögnum í eigu Loftmynda og þjónustu þeim tengdri. Myndkort af öllu landinu með 0,15 m. upplausn í þéttbýli, 0,5 m. í dreifbýli og 1 m. á hálendinu verða afhent með WMS þjónustu, einnig er sýnt vegakerfi og örnefnaskrá Loftmynda.

Kynbótasýning Sörlastöðum í Hafnarfirði

17.05.2010
Fréttir
Vegna kvefpestar sem nú herjar á hross hafa skráningar verið dræmar á kynbótasýninguna á Sörlastöðum í Hafnarfirði og þess vegna mun hún ekki hefjast fyrr en 25. maí, eins og þegar hefur verið tilkynnt. Mikið var um afskráningar í dag og nokkrir knapar hafa haft samband og ætla að sjá til fram yfir helgi hvort þeir geti mætt með þau hross sem þegar hafa verið skráð til leiks.

Dregið í happdrætti MDVÍS

17.05.2010
Fréttir
Dregið var í happdrætti Meistaradeildar VÍS á dögunum og eru upplýsingar um vinningshafana komnar inn á heimasíðu deildarinnar www.meistaradeildvis.is

Lokamót Meistaradeildar VÍS

17.05.2010
Fréttir
Halda átti lokamót Meistaradeildar VÍS Sumardaginn fyrsta, 22. apríl s.l. En eins og flestir vita þurfti að fresta mótinu sökum þess að hósta-og kvefpestin var komin upp í hrossum hjá rúmlega helmingi knapa deildarinnar.

Kiljan sprækur og orkumikill

14.05.2010
Fréttir
Kiljan frá Steinnesi hlaut háar einkunnir á héraðssýningunni í Víðidal, hækkaði í yfirlitinu og er kominn með aðgöngumiða inn á Landsmót með aðaleinkunnina 8,71. Kiljan virðist hafa náð fyrri styrk eftir hóstapestina svonefndu og segir Þorvaldur Árni Þorvaldsson, þjálfari hans, að hesturinn sé hress, sprækur og orkumikill. Nánast öll hrossin eru komin í þjálfun á ný eftir pestina á hestabúinu Hvoli í Ölfusi þar sem Þorvaldur Árni er yfirþjálfari og tamingamaður.

Kynbótasýning Sörlastöðum í Hafnarfirði

12.05.2010
Fréttir
Vegna kvefpestar sem nú herjar á hross hafa skráningar verið dræmar á kynbótasýninguna í Hafnarfirði og því hefur verið ákveðið að sýning þar hefjist ekki fyrr en 25. maí en ekki 17. maí eins og til stóð. Sýningunni lýkur með yfirlitssýningu föstudaginn 28. maí og mun hún verða auglýst betur þegar nær dregur. 

Kvennakvöld í Líflandi Lynghálsi 12. maí

11.05.2010
Fréttir
Lífland býður konum í Reykjavík og nágrenni á kvennakvöld í verslun okkar að Lynghálsi, miðvikudaginn 12. maí kl. 18:00. Veldur hver á heldur – afköst hestsins endurspegla knapann. Hvernig hefur áseta okkar áhrif á hreyfingar hestsins? Getum við þvingað hreyfingar hestsins með rangri ásetu eða stjórnun? Artemisia Bertus, tamningamaður og reiðkennari kemur til okkar og talar um samband manns og hests á áhugaverðum fyrirlestri.

Yfirlitssýning Víðidal

11.05.2010
Fréttir
Yfirlitssýning kynbótahrossa  í Víðidal er á morgun miðvikudaginn 12. maí  og hefst kl. 9:00. Byrjað verður á hryssum í flokki 7 vetra og eldri og endað á stóðhestum 7 vetra og eldri.  Reiknað er með að yfirlitssýningu verði lokið um kl.11.  Röðun í holl verður birt fyrir miðnætti í kvöld.                                   

Frá hestamannafélaginu Létti

11.05.2010
Fréttir
Vegna mikilla veikinda í hestum á Akureyri og nágrenni hefur Léttir ákveðið að fresta kennslu á Knapamerkum 2-3-4 og 5 í 2 vikur og þá verður staðan metin hvort hægt verði að halda áfram kennslu. Keppnisnámskeiðinu verður einnig frestað um 2 vikur og verður staðan metin þá.