Fréttir: Nóvember 1999

Rásröð í milliriðla í barnaflokki

30.11.1999
Fréttir
Rásröð í milliriðla í barnaflokki liggja fyrir, en þeir hefjast klukkan 10 á fimmtudagsmorgun.

Milliriðlar í ungmennaflokki

30.11.1999
Fréttir
Rásröð í milliriðla í ungmennaflokki liggja fyrir, en þeir fara fram á morgun, miðvikudag, klukkan 17:00.

Milliriðar í unglingaflokki

30.11.1999
Fréttir
Rásröð í milliriðla í unglingaflokki liggja fyrir, en þeir fara fram á morgun, miðvikudag, klukkan 14:00.

Kynbótasýningum 4 v hryssna frestað til morguns

30.11.1999
Fréttir
Kynbótasýningu 4 v hryssna var frestað vegna hvassviðris undir kvöld. Enn átti eftir að sýna 8 hryssur. Kynbótadómar halda áfram klukkan sjö í fyrramálið.

Sigurbjörn með tvo efstu hestana eftir forkeppni í A-flokki

30.11.1999
Fréttir
Kolskeggur frá Oddhóli er í efsta sæti með einkunnina 8,79 og Stakkur frá Halldórsstöðum í öðru sæti með 8,72 eftir forkeppni í A-flokki gæðinga. Sigurbjörn Bárðarson er knapi á báðum hestum og sýndi snilldartakta.

Hæfileikamiklir 4 vetra stóðhestar

30.11.1999
Fréttir
Magnaðir hestar fóru í dóm í flokki 4 vetra stóðhesta í dag. Seiður frá Flugumýri hlaut hæsta dóminn, hækkaði hæfileikaeinkunn eilítið, fór úr 8,33 í 8,35. Seiður lækkaði lítillega fyrir stökk en hækkaði á móti fyrir skeið. Hesturinn er lipur, léttbyggður og háfættur. Hann er með 8,5 fyrir vilja og geðslag og er afar jákvæður að sögn ræktandans Páls Bjarka Pálssonar á Flugumýri.

Arnar Logi efstur í unglingaflokki eftir milliriðil

30.11.1999
Fréttir
Arnar Logi Lúthersson og Frami frá Víðidalstungu áttu góðan dag á keppnisvellinum og eru í efsta sæti í unglingaflokki eftir milliriðillinn sem fram fór í dag.

Taugarnar þandar í ungmennaflokki

30.11.1999
Fréttir
Hörð keppni var háð í milliriðlum í ungmennaflokki, en keppni lauk með því að Henna Siren varð efst. Aðeins o,1 stigi munaði á henni og Heklu Katharínu Kristinsdóttur. Þrír keppendur fengu nánast jafna einkunn, 8,33. Réðí aukastafur því að Sigrún Ýr Sigurðardóttir stóð örlítið framar en hinir tveir, hafnaði hún í 15. sæti og ríður því B-úrslit.

Rásröð í milliriðlum í A-flokki gæðinga

30.11.1999
Fréttir
Rásröð liggur fyrir í milliriðlum í A-flokki gæðinga sem fram fer klukkan 13:30 á morgun, fimmtudag.