Fréttir: Febrúar 2020

Myndefni frá LM 2011 komið inn í WorldFeng

25.02.2020
Fréttir
Nýlega bættist við myndefni frá LM 2011 á Vindheimamelum í WorldFeng þ.e.a.s. stóðhestar, úrslit og skeið.

Hestaferð í Noregi á vegum FEIF

20.02.2020
Fréttir
Landssamtök íslenska hestsins í Noregi (Norsk Islandshestforengin) stendur fyrir hestaferð í Noregi í samvinnu við frístundareiðmennskunefnd FEIF (Leisure Riding Committee). Er þessi ferð hluti af hátíð í Noregi sem kallast Fjellfestival og fer fram dagana 19. til 23. ágúst 2020.

Vinir Skógarhóla

18.02.2020
Fréttir
Í haust var stofnaður félagsskapur sjálfboðaliða um endurbætur á Skógarhólum, “Vinir Skógarhóla”, sem vilja leggja sitt að mörkum til að bæta aðstöðuna þar.

Skógarhólar á Þingvöllum – áningarstaður hestamanna

13.02.2020
Fréttir
Skógarhólar eru í eigu Hestamannafélaganna í landinu og er saga Skógarhóla samofin sögu Landssambands hestamannafélaga. Á þessu ári eru 70 ár síðan fyrsta Landsmót hestamanna var haldið á Skógarhólum.

Nýtt áningargerði við Sveinsstaði í A-Hún

11.02.2020
Fréttir
Á síðasta ári stóð Hestamannafélagið Neisti fyrir því að smíða veglegt áningargerði við Sveinsstaði í Austur-Húnavatnssýslu. Við Sveinsstaði mætast margar og fjölfarnar leiðir bæði ofan af hálendi og innan sveitar. Aðstaðan sem fyrir var voru eingöngu þau mannvirki sem bændur á Sveinsstöðum komu sér upp til eigin nota. Umferð um Sveinsstaði var orðin mikil og oft fjöldi hópa í áningu á sama tíma. Það þótti því bæði nauðsynlegt og eðlilegt að reyna að koma upp betri aðstöðu á þessum krossgötum.

Samningur um LM 2022 undirritaður

07.02.2020
Fréttir
Á setningarathöfn áhugamannadeildarinnar var skrifað var undir samning milli Landsmóts ehf. og Hestamannafélagsins Spretts um að halda Landsmót 2022. Mótið verður haldið á félagssvæði Hestamannfélagsins Spretts á Kjóavöllum dagna 4. til 10. júlí.

FEIF-þing 2020

03.02.2020
Fréttir
Ársþing FEIF var haldið dagana 31. janúar til 1. febrúar á Hótel Örk í Hveragerði. Á þingið mættu um 120 fulltrúar frá aðildarlöndum FEIF.

Reglur um gæðingafimi frá starfshópi LH

01.02.2020
Fréttir
Á síðasta landsþingi LH á Akureyri var samþykkt að LH yrði leiðandi í því að gera gæðingafimi að fullgildri keppnisgrein í lögum og reglum sambandsins og gert að skipa starfshóp til þess verks.