Myndefni frá LM 2011 komið inn í WorldFeng

25. febrúar 2020
Fréttir

Nýlega bættist við myndefni frá LM 2011 á Vindheimamelum í WorldFeng þ.e.a.s. stóðhestar, úrslit og skeið. Einnig eru stóðhestar frá LM 2000 í Reykjavík komnir inn og meira væntanlegt frá því móti á næstu vikum. Myndefni frá Landmótunum 2002-2008 kemur svo jafn óðum inn í kjölfarið.

Mikil söguleg verðmæti liggja í myndböndum frá landsmótum liðinna ára, þarna er skrásett saga landsmóta og kynbótasaga íslenska hestsins. Landmót 1954-1986 eru í nokkrum stuttum þáttum. Landsmótin 2012, 2014, 2016 og 2018 eru klippt og tengd við hvern hest.

Hestamannafélögum býðst að kaupa aðgang að myndböndunum fyrir sína félagsmenn fyrir 350 kr. á ári fyrir hvern félagsmann 18-69 ára, en almennur aðgangur kostar annars 4.990 á ári fyrir hvern notanda. Nýlega bættist Hestamannafélagið Sörli hóp þeirra sem hafa keypt aðgang að myndefninu á WorldFeng. Fyrir eru með aðgang Sleipnir, Trausti, Kópur, Dreyri, Geysir og Snæfellingur ásamt Félagi hrossabænda og Íslandshestafélögunum í Svíþjóð, Noregi og Belgíu.

Þau félög sem hafa áhuga á að kaupa aðgang að myndefninu fyrir sína félagsmenn geta haft samband við skrifstofu LH á netfangið hjorny@lhhestar.is.