Fréttir: Apríl 2015

Skrifstofa LH verður lokuð á morgun, fimmtudag

29.04.2015
Fréttir
Skrifstofan verður lokuð á morgun, fimmtudaginn 30. apríl. Opnar aftur klukkan 9:00 á mánudaginn.

Ungmenni sem stefna á úrtöku fyrir HM - skráningu lýkur 1. maí

29.04.2015
Skráningu á námskeið helgarinnar, Ungmenni sem stefna á úrtöku fyrir HM lýkur á miðnætti, föstudaginn, 1. maí. Námskeiðið hefst svo klukkan 8:30 á laugardag og lýkur á sunnudag.

Markaðsverkefni um íslenska hestinn ýtt úr vör

29.04.2015
Á fundi sem haldinn var í Borgarnesi 14. apríl var fyrsta áfanga í sameiginlegu markaðsstarfi til kynningar á íslenska hestinum og vörum og þjónustu honum tengdum, formlega ýtt úr vör.

Ungmenni sem stefna á úrtöku fyrir HM

27.04.2015
Fréttir
Boðið verður upp á námskeið/aðstoð við þjálfun fyrir öll ungmenni sem stefna á úrtöku fyrir heimsmeistaramótið í sumar.

Kynning á kortasjánni í Harðarbóli

27.04.2015
Sæmundur Eiríksson höfundur Kortasjáarinnar verður með kynningu á Kortasjánni miðvikudaginn 29.apríl kl.20.00 í Harðarbóli.

Ráðstefnu um framtíð landsmóta frestað fram á haust.

22.04.2015
Fréttir
Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að fresta fundinum sem vera átti um helgina um framtíð landsmóta.

Sigurvegarar í stigakeppni Uppsveitadeildar Loga, Smára og Trausta 2015

20.04.2015
Fréttir
Lið Hrosshaga/Sunnuhvols sigraði Uppsveitadeild Loga, Smára og Trausta 2015, sem haldin var í samstarfi við Flúðasveppi.

Líflandsmót Fáks verður haldið 25. og 26. apríl.

20.04.2015
Fréttir
Skráningargjöld eru aðeins 1.500 kr á hverja skráningu en skráning verður frá miðnætti 18. og fram að miðnætti 21. apríl á http://skraning.sportfengur.com/ (Veljið skráningu, mót, félag og svo fylla út reitina)

Úrslit uppsveitadeildar Loga, Smára og Trausta

20.04.2015
Uppsveitadeild Loga, Smára og Trausta lauk í gær með glæsilegri keppni í tölti og fljúgandi skeiði. Fólk var orðið eftirvæntingarfullt kl. 20:00 þegar forkeppni í tölti hófst á lokadegi Uppsveitadeildar Loga, Smára og Trausta, enda húsið fullt og langþráð vorveður í lofti.