Lokamót Meistaradeildar VÍS

17. maí 2010
Fréttir
Halda átti lokamót Meistaradeildar VÍS Sumardaginn fyrsta, 22. apríl s.l. En eins og flestir vita þurfti að fresta mótinu sökum þess að hósta-og kvefpestin var komin upp í hrossum hjá rúmlega helmingi knapa deildarinnar. Halda átti lokamót Meistaradeildar VÍS Sumardaginn fyrsta, 22. apríl s.l. En eins og flestir vita þurfti að fresta mótinu sökum þess að hósta-og kvefpestin var komin upp í hrossum hjá rúmlega helmingi knapa deildarinnar. Þá var talað um að mótið yrði haldið eftir fjórar vikur, samkvæmt því væri það í næstu viku. En í ljósi þróunar hósta- og kvefpestarinnar hefur stjórn deildarinnar tekið þá ákvörðun að fresta lokamótinu um óákveðinn tíma.

Þegar línur fara að skýrast og ljóst er að pestin sé í rénun eða svo gott sem, hætt mun stjórnin koma saman og ákveða framhaldið.

www.meistaradeildvis.is