Fréttir: Ágúst 2009

Valdimar heldur upp heiðri Íslendinga í gæðingaskeiði

06.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Valdimar Bergsstað heldur uppi heiðri íslendinga í gæðingaskeiðinu. Hann er sjöundi í röð allra keppenda með 7,38 í einkunn. Heimsmeistari ungmenna í greininni og efstur íslensku knapanna. Frábær árngur. Sprettirnir voru báðir heilir og sá seinni betri. Alveg eins og á að gera það. Teitur Árnason á Glaði frá Brattholti er í öðru sæti í ungmennaflokki og þrettándi í röð allra keppenda.

Spurningamerki í B úrslitum í tölti

06.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Enginn íslenskur kepppandi er í B úrslitum í tölti. Þó er líklegt að einhver dragi sig út úr úrslitunum. Til dæmis Lena Trappe ef allt gengur upp í fjórgangi, þar sem hún þykir líkleg í toppbaráttuna. Þá er næstur inn Haukur Tryggvason á Baltasar frá Freyelhof, sem fékk 6,80 í forkeppni og ellefta sætið. Og þarnæstur Þórarinn Eymundsson á Krafti með 6,73.

Með aðra hönd á tölthorninu

06.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Ekkert nema slys kemur í veg fyrir að Jóhann Skúlason á Hvini frá Holtsmúla verði heimsmeistari í tölti á HM2009. Hann reið glæsilegt prógram í forkeppninni í dag og fékk 8,43 í einkunn. Tindur frá Varmalæk og Kraftur frá Bringu hjá heimsmeisturunum Stian Petersen og Þórarni Eymundssyni virðast hins vegar heillum horfnir og komust hvorugur í úrslit.

Peyjarnir stóðu sig vel

05.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Peyjarnir okkar stóðu sig vel í forkeppni í fimmgangi. Valdimar Bergsstað á Orion frá Lækjarbotnum er í 18. sæti í röð og þriðji í ungmennflokki á eftir hinni sænsku Söndru Jonsson á Ara frá Öllstorp, sem er önnur. Teitur Árnason á Glað frá Brattholti er 19. í röð og í fjórða sæti. Efstur í ungmennaflokki er þjóðverjinn Jonas Hassel á Seifi frá Birkenhof.

Spennandi B úrslit í fimmgangi framundan

05.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Fimm sterkir keppendur munu keppa í B úrslitum í fimmgangi á HM09. Allir eiga möguleika. Einkunnir þeirra eru fremur jafnar. Haukur Tryggvason á Baltasar frá Freyelhof er þó líklegastur til að vinna. Er í sjötta sætinu með dálítið forskot í einkunn. Hann hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu, varð meðal annars í öðru sæti á Þýska meistaramótinu á eftir Rúnu Einarsdóttur.

Ekki eru allar ferðir til fjár

05.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Ekki eru allar ferðir til fjár. Það máttu nokkrir knapar í fimmgangi á HM09 reyna í dag. Frægir knapar sem allir reiknuðu með í toppbaráttuna voru óheppnir og komust ekki í úrslit. Þar á meðal heimsmeistarinn Þórarinn Eymundsson á Krafti frá Bringu, sem freistaði þess að verja titilinn.

Fjórir íslenskir knapar í A úrslitum í fimmgangi

05.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Daníel Jónsson var hylltur af áhorfendum að lokinni sýningu hans á Tóni frá Ólafsbergi í forkeppni í fimmgangi á HM09. Áhorfendur frá öllum þjóðum stöppuðu, klöppuðu og hrópuðu. Einkunnir dómara voru þó ekki í takt við fagnaðarlætin. Þó allgóð, 7,53.

Tveir synir Svönu frá Neðra-Ási

05.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Victor frá Diisa er efstur allra kynbótahrossa á HM09 í Sviss eftir fordóma með 8,63 í aðaleinkunn. Hann jafnar einkunn sína frá því á Osterbyholz í vor og á nú yfirlitssýningu eftir. Hann gæti hæglega hækkað sig fyrir skeið, en það er í dómsorði sagt fjórtaktað og ekki ferðmikið. Það er eigi að síður mjög fallegt sem gangtegund.

Hjá Dísu í Undralandi

04.08.2009
Fréttir
Jens Einarsson: Mótssvæðið í Brunnadern í Sviss er áreiðanlega það fallegasta sem hýst hefur heimsmeistaramót íslenskra hesta til þessa. Umhverfinu er varla hægt að lýsa öðruvísi en það sé eins og klippt út úr góðri myndasögu fyrir börn.