Undirbúningur fyrir keppni í gæðingafimi

Á næstu vikum verða haldin nokkur mót í gæðingafimi LH og er vert að minna á að ítarlegar upplýsingar um gæðingafimi eru aðgengilegar á vef LH undir flipanum lög og reglur. Þar má finna reglur fyrir öll þrjú stigin, skilgreiningar á æfingum og leiðara, gátlista fyrir keppendur og mótshaldara ásamt lista yfir frjálsar æfingar sem hafa verið leyfðar.

Mikilvægt er að árétta fyrir keppendum að á öðru og þriðja stigi gæðingafiminnar eru allar æfingar nema þrjár framkvæmdar án stuðnings við vegg. Það þýðir að vegalengd frá vegg þarf að vera í það minnsta 2 metrar í hverri æfingu.

Undantekningarnar eru skeið, hraðabreyting á tölti og slaktaumatölt.

Knapar á 3. stigi skulu einnig hafa í huga að skerpt hefur verið á kröfunum á tölti hjá þeim hestum sem ekki sýna skeið. Til að hljóta hærri heildareinkunn en 7 fyrir tölt verður knapi að sýna hægt tölt og greitt tölt.

Hér fyrir neðan getið þið nálgast reglurnar og hvetjum við keppendur að lesa þær vel yfir fyrir það stig er við á hverju sinni.

Gangi ykkur vel.