Fréttir: Apríl 2013

Skráningar á kynbótasýningar vorsins

17.04.2013
Fréttir
15. apríl var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þannig að nú ættu menn ekki að þurfa að vera á síðustu stundu að skrá. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“.

Lokaundirbúningur fyrir HM úrtöku

16.04.2013
Fréttir
Lokaþjálfunarnámskeið fyrir alla þá sem hafa hug á að taka þátt í HM úrtöku í júní, verður haldið dagana 20.-22.apríl í reiðhöll Eldhesta í Ölfusinu. Kennarar verða þau Julio Borba, Olil Amble og Rúna Einarsdóttir. Námskeiðið hefst kl. 9:00 á laugardagsmorgninum.

Aldursmörk í barnaflokki

16.04.2013
Fréttir
Af gefnu tilefni vill stjórn LH koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri.

Líflandsmót Fáks

14.04.2013
Reiðhöllinni Víðidal

Kvennatöltið í reiðhöllinni Víðidal

13.04.2013
Opið töltmót fyrir konur 18 ára og eldri.

Lög og reglur LH

12.04.2013
Fréttir
Verið er að leggja lokahönd á uppfærslu á Lögum og reglum LH. Nýr reglupakki verður birtur eftir helgina og verður sú útgáfa nefnd Lög og reglur LH 2013 - 1.

Ráslistar Kvennatöltsins

12.04.2013
Fréttir
Ráslistar Kvennatöltsins eru klárir! Kíkið á þá hér...

Dagskrá Kvennatöltsins

12.04.2013
Fréttir
Dagskrá Kvennatöltsins á laugardaginn kemur liggur nú fyrir. Keppni hefst kl. 15 í reiðhöllinni í Víðidal og mun standa fram á kvöld. Skráning er góð í alla flokka og stefnir í spennandi keppni. Þegar forkeppni lýkur verður gert matarhlé en svo hefst úrslitakeppnin kl. 19:40 með B og A úrslitum í öllum flokkum.

Járninganámskeið

12.04.2013
Fréttir
Hestamiðstöðin Hestasýn í Mosfellsbæ er með almennt járningarnámskeið dagana 13.-14. maí og/eða 20-21. maí. Kennari: Sigurður Torfi Sigurðsson, járningameistari.