Fréttir: Júní 2010

Sögusetrið komið í nýtt húsnæði

09.06.2010
Fréttir
Þáttaskil urðu í starfsemi Söguseturs íslenska hestsins er það fékk á dögunum húsnæði undir starfsemi sína, þ.e. sýninga-, rannsókna- og starfsaðstöðu.

Ljósmyndasýningin Hestar og menn

08.06.2010
Fréttir
Söguseturs íslenska hestsins og Héraðsskjalasafns Skagfirðinga munu opna ljósmyndasýninguna Hestar og menn á Hótel Varmahlíð, sunnudaginn 6. júní nk., kl. 16.00.

Erlendir sjálfboðaliðar leita verkefna

08.06.2010
Fréttir
Fjöldi erlendra sjálfboðaliða hugðust koma til starfa á Landsmóti hestamanna í sumar.  Hluti þessara sjálfboðaliða eru á vegum samtakanna SEEDS og var áætlað að 9 manns kæmu þ. 21. júní til vinnu á Landsmóti og ynnu til 4. júlí en annar 9 manna hópur áætlaði að koma 27. júní og starfa á mótinu og viku eftir það eða til 11. júlí nk.

Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar Neista

08.06.2010
Fréttir
Æskulýðsnefnd Neista hélt uppskeruhátíð í gær fyrir alla krakkana úr námskeiðshópunum í vetur. Þau mættu flest ásamt foreldrum. Farið var í þrautabraut, ratleik ofl.

Sigurður Matthíassson valinn í landslið Íslands fyrir NM2010

08.06.2010
Fréttir
Páll Bragi Hólmarsson liðstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum hefur valið einn knapa í viðbót fyrir Norðurlandamótið í hestaíþróttum sem haldið verður í Ypäjä í Finnlandi 4. – 8.ágúst 2010.

Tímasetningar kynbótasýninga á Gaddstaðaflötum

07.06.2010
Fréttir
Á fundi með knöpum 2. júní síðastliðinn í Félagsheimili Sleipnis kom fram að þeir teldu engan grundvöll fyrir því að vera með sýningu fyrr en í endaðan júní, ástandið væri þannig á hrossunum. Einnig óskuðu þeir eftir sýningu í lok júlí.

Stórmót á Melgerðismelum í ágúst

07.06.2010
Fréttir
Opið stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 21.-22. ágúst, með sama sniði og í fyrra. Keppt verður í öllum flokkum, tölti og kappreiðar. Í fyrra voru peningaverðlaun í kappreiðum og tölti fyrir 320 þús. kr. Varla verða þau minni í ár.

Fyrstu íslensku knaparnir valdir á NM2010

02.06.2010
Fréttir
Norðurlandamót íslenska hestsins verður haldið 4.-8.ágúst 2010 í Ypäjä í Finnlandi. Páll Bragi Hólmarsson, liðstjóri íslenska landsliðsins, hefur valið fyrstu 3 landsliðsmennina sem keppa munu fyrir hönd Íslands á NM2010. Þeir eru:

Tilkynning frá LH

01.06.2010
Fréttir
Stjórn Landssambands hestamannafélaga vill þakka þann góða samhug sem kom fram á fundi hagsmunaaðila í hestamennsku ásamt dýralæknum og embættismönnum síðastliðinn mánudag. Þar var ákveðið að fresta Landsmóti hestamanna eins og fram hefur komið í samþykktri tillögu og  fréttatilkynningu frá fundinum.