Fréttir: Júní 2010

Ráðstefna um íþróttasálfræði

23.06.2010
Fréttir
Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting. 

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn

23.06.2010
Fréttir
Alþjóðlegi Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. júní. Þennan dag árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð.

Opna WR íþróttamótið - skráning hafin

23.06.2010
Fréttir
Opið íþróttamót verður haldið í Víðidalnum helgina 2. - 4. júlí. Mótið er World Ranking mót og verður keppt í tölti, fjórgangi, fimmgangi, slaktaumatölti, gæðingaskeiði og 100m skeiði í öllum flokkum. Mótshaldarar áskilja sér þó rétt til að sameina flokka ef næg skráning fæst ekki í einhverjum greinum.

Sumarfjarnám ÍSÍ

22.06.2010
Fréttir
Sumarfjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar hefst mánudaginn 28. júní nk.  Hægt er að skrá þátttöku á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 til og með föstudagsins 25. júní nk. 

Smitandi hósti í hrossum ekki talinn af völdum herpessýkinga

22.06.2010
Fréttir
Eins og skýrt hefur komið fram í fréttatilkynningum frá Mast er ekki hægt að tengja faraldur smitandi hósta sem nú fer um hrossastofninn við neinar veirusýkingar sem þekktar eru fyrir að leggjast á öndunarfæri hrossa. Þar eru meðtaldar herpesveirurnar EHV-1, EHV-2, EHV-4 og EHV-5.

Kynbótaýning á Gaddstaðaflötum 28.júní

21.06.2010
Fréttir
Í dag er síðasti skráningardagur á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum sem hefst 28. júní. Tekið er við skráningum í síma 480-1800 en einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands www.bssl.is.

Teitur Árnason valinn í landsliðið

21.06.2010
Fréttir
Páll Bragi hefur valið ungmennið Teit Árnason í íslenska landsliðið í hestaíþróttum fyrir NM2010 sem haldið verður í Finnlandi 4.-8.ágúst.

Gæðingakeppni Léttis

21.06.2010
Fréttir
Gæðingakeppni Léttis verður haldin 24.-25. júlí á Hlíðarholtsvelli, Lögmannshlíð. Nánar auglýst síðar.

Kynbótasýning Gaddstaðaflötum

21.06.2010
Fréttir
Kynbótasýning verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu vikuna 28. júní til 2. júlí. Eins og sjálfsagt flestir vita var sýningunni sem vera átti 31. maí til 14. júní frestað vegna hrossapestar þannig nú þegar hefur verið tekið við þó nokkrum skráningum á sýninguna.