Fréttir: Október 2010

Ágætu félagar

06.10.2010
Fréttir
Skráning í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ stendur nú yfir en skráningunni lýkur nk. föstudag, 8. okt. og hefst námið mánudaginn 11. okt.

Ráðstefnur um Landsmót

04.10.2010
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga efnir til ráðstefna um Landsmót. Annarsvegar verður haldin ráðstefna á Suðurlandi og hinsvegar á Norðurlandi. Ráðstefnurnar verða haldnar í vikunni fyrir Landsþing, semsagt á bilinu 18. - 21.okt. Nánar auglýst síðar.

Kvennaskemmtikvöld fyrir Herrakvöld Fáks

04.10.2010
Fréttir
Allar fagrar og skemmtilegar konur, stúlkur og dömur ætla að koma saman í Veislusalnum í Reiðhöllinni fyrir Herrakvöldið í Fáki laugardagskvöldið 9. okt. nk.

Réttir í Melgerðismelarétt

01.10.2010
Fréttir
Réttað verður í Melgerðismelarétt þann 2. október kl. 13:00. Að réttum loknum stendur Hrossaræktarfélagið Náttfari fyrir sölusýningu á Melgerðismelum kl. 15:30 og endað verður á stóðréttadansleik í Funaborg kl. 23:00. Húsið opnar kl. 22:00 og mun hljómsveitin Cantabil leika fyrir dansi fram á nótt. Miðaverð aðeins 1.500-.

Helgi Björns heldur uppi stuðinu á Uppskeruhátíð hestamanna!

01.10.2010
Fréttir
Miðasala er hafin á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður þann 6.nóvember nk. á Broadway.

Mótmæli vegna lokunar Vonarskarðs

01.10.2010
Fréttir
Laugardaginn 2.október kl.13:00 við Vonarskarð munu Útivistarfélög á Íslandi efna til mótmæla vegna lokunnar á Vonarskarði. Mótmælin fara fram undir yfirskriftinni „Jarðarför á ferðafrelsi Íslendinga".

Krefjast ferðafrelsis í Vatnajökulsþjóðgarði

01.10.2010
Fréttir
Fjölmargir aðilar í ferðaþjónustu og útivist eru afar ósáttir við verndaráætlun sem stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur lagt fyrir umhverfisráðherra til staðfestingar.

Heimildarmynd Baldur & Baldur

01.10.2010
Fréttir
Eins og áður hefur komið fram á heimasíðu hestamannafélagsins Hrings (www.hringurdalvik.net) hefur Þorfinnur Guðnason unnið að heimildarmynd um stóðhestinn Baldur frá Bakka.

Uppskeruhátíð barna og unglinga í Létti

01.10.2010
Fréttir
Sunnudaginn 17. október kl 17.00 verður haldin uppskeruhátíð fyrir Léttiskrakka í Top Reiter höllinni. Þar verða afhentar viðurkenningar fyrir bestu mætingu í reiðtíma og verðlaun fyrir knapa ársins í barna- og unglingaflokki.