Fréttir: Október 2009

Sölusýning í reiðhöllinni á Flúðum

29.10.2009
Fréttir
Föstudaginn 30. okt. 2009 verður sölusýning í reiðhöllinni á Flúðum. Sýningin hefst kl. 19.30 (ath. breytta tímasetningu). Einnig verður uppboð á folatollum til styrktar æskulýðsnefndar, spennandi folar í boði.

Vel sótt sýnikennsla hjá Antoni

28.10.2009
Fréttir
Félag tamningamanna stóð fyrir sýnikennslu með Antoni Páli Níelssyni í samvinnu við hestamannafélagið Gust í reiðhöll Gustara sl. miðvikudagskvöld. Aðsókn var mjög góð, en um 200 manns mættu og fylgdust með Antoni sem fór vítt og breitt yfir sviðið hvað varðar undirbúning og þjálfun hrossa, auk þess að kynna ýmsar vinnuaðferðir og búnað. Góður rómur var gerður að kennslunni og áttu gestir notalega og fróðlega kvöldstund saman.

Aðalfundur kvennadeildar Fáks frestast!

28.10.2009
Fréttir
Aðalfundur Kvennadeildar Fáks sem átti að vera í kvöld  FRESTAST vegna veikinda. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 2. okt. í félagsheimili Fáks og hefst hann kl. 20:00

Fáksfréttir

23.10.2009
Fréttir
Hér fyrir neðan má sjá fréttir frá hestamannafélaginu Fák.

Nýr vefur Félags hrossabænda

23.10.2009
Fréttir
Nýr vefur Félags hrossabænda hefur nú verið tekinn í gagnið á slóðinni www.fhb.is . Þar er að finna upplýsingar um félagið og starfsemi þess, auk ýmis konar fróðleiks er varðar íslenska hestinn, bæði á íslensku og ensku.

Tilnefningar til knapaverðlauna

22.10.2009
Fréttir
Nú liggja fyrir tilnefningar til knapaverðlauna sem veitt verða á Uppskeruhátíð hestamanna 7.nóv. 2009. Einnig verða veitt heiðursverðlaun Landssamband hestamannafélaga.

Íþrótta- og gæðingadómar komnir inn í Worldfeng

22.10.2009
Fréttir
Frá og með deginum í dag geta áskrifendur Worldfengs skoðað alla íþrótta- og gæðingadóma á Íslandi.

Minnum á sýnikennslu FT í kvöld!

21.10.2009
Fréttir
Minnum á að í kvöld, miðvikudaginn 21. október, stendur Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Gust, fyrir sýnikennslu í reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 20.

Lárus Á. Hannesson nýkjörinn formaður GDLH

20.10.2009
Fréttir
Á aðalfundi Gæðingadómarafélags Landssamband hestamannafélaga sem haldin var föstudaginn 16.okt. síðastliðinn var kjörinn nýr formaður félagsins, Lárus Á. Hannesson.