Lárus Á. Hannesson nýkjörinn formaður GDLH

20. október 2009
Fréttir
Á aðalfundi Gæðingadómarafélags Landssamband hestamannafélaga sem haldin var föstudaginn 16.okt. síðastliðinn var kjörinn nýr formaður félagsins, Lárus Á. Hannesson. Á aðalfundi Gæðingadómarafélags Landssamband hestamannafélaga sem haldin var föstudaginn 16.okt. síðastliðinn var kjörinn nýr formaður félagsins, Lárus Á. Hannesson. Lárus tekur við stjórnartaumunum af Ágústi Hafsteinssyni sem hefur undarfarin ár unnið ötullega fyrir félagið. Ágústi eru þökkuð frábær störf í þágu félagsins og óskar félagið honum velfarnaðar.
Lárus Á. Hannesson er mjög reyndur gæðingadómari og hefur auk þess starfað í stjórn GDLH í mörg ár. Auk Lárusar var kosin í aðalstjórn Sigurður Ævarsson og í varastjórn voru kosin þau Erla Guðný Gylfadóttir og Sigurður Halldórsson. Í stjórn GDLH sitja því: Lárus Á. Hannesson formaður, Oddrún Ýr Sigurðardóttir gjaldkeri, Sigurður Ævarsson, Arndís B. Brynjólfsdóttir og Erlendur Árnarson. Í varastjórn sitja Halldór Sigurðsson og Erla Guðný Gylfadóttir.