Fréttir: Júlí 2008

Hæst dæmdu kynbótahross landsins verðlaunuð

05.07.2008
Fréttir
Afhending verðlauna fyrir 10 hæst dæmdu hryssur og stóðhesta í öllum aldursflokkum fór fram í dag. Þétt var setið í brekkunni, enda tilkomumikið að sjá bestu kynbótahross landsins samankomin á einum stað.

Fjölmenni skoðar Orra frá Þúfu

05.07.2008
Fréttir
Mikill spenningur er í kringum hinn magnaða stóðhest Orra frá Þúfu, sem nú er sýndur í reiðhöllinni. Hesturinn var pollrólegur þrátt fyrir mannfjöldann og hnusaði af þeim sem nálguðust hann.

Jakob og Fróði frá Litlalandi sigruðu B-úrslit í tölti

04.07.2008
Fréttir
Jakob Svavar Sigurðsson á Fróða frá Litlalandi var langefstur í B-úrslitum í tölti sem fram fór í kvöld með einkunnina 8,39. Hann ríður því A-úrslitin á laugardagskvöldið. Talið er að tæplega 9 þúsund manns séu nú komin á Landsmótssvæðið.

Líf og fjör í Húsasmiðjugarðinum

04.07.2008
Fréttir
Fjöldi barna hélt í Húsasmiðjugarðinn í dag og skemmti sér konunglega, enda er þar nóg við að vera í góða veðrinu. Þar er meðal annars búið að koma upp leiktækjum, trampólíni og fótboltamörkum. Boðið hefur verið upp á andlitsmálningu og mátti sjá mörg skrautleg andlit og lítil furðudýr á vappi á mótssvæðinu. Hestar voru að sjálfsögðu líka í aðalhlutverki.