Fréttir

Forsala aðgöngumiða hafin

21.02.2012
Fréttir
Á fimmtudaginn klukkan 19:30 verður keppt í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Top Reiter og Líflandi og verða miðar komnir seinna í dag í Baldvin og Þorvald á Selfossi.

Glæsilegar bleiku stelpurnar!

20.02.2012
Fréttir
Drottningar í bleiku svifu um reiðhallarsalinn á glæsilegu tölti og öttu kappi í Bleika töltmótinu. Mótið er haldið af Fákskonum og rennur öll innkoman beint til Krabbameinsfélagsins til rannsóknar á brjóstakrabbameini.

Flottir karlar í Herði

20.02.2012
Fréttir
Líflegt karlatölt fór fram í Herði á laugardaginn. Glæsilegir taktar sáust og voru gæjarnir margir hverjir gríðarlega vel ríðandi.

Opið töltmót í Mána

17.02.2012
Fréttir
Hestamannfélagið Máni ætlar að halda Opið töltmót í Mánahöllinni laugardaginn 10.  mars og er mótið ætlað fyrir 17 ára og eldri.

I. Landsbankamót vetrarins - Opið öllum

17.02.2012
Fréttir
I. Landsbankamót vetrarins verður haldið þann 25. febrúar, kl.13:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt verður í tölti á beinni braut.

Seinna upprifjunarnámskeið

17.02.2012
Fréttir
Seinna upprifjunarnámskeið HÍDÍ verður haldið í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þann 26.febrúar n.k. Kl.10:00-17:00.

4g í Húnvetnsku

17.02.2012
Fréttir
Hér fyrir neðan má sjá ráslista fyrir fjórganginn í Húnvetnsku liðakeppninni. Viljum vekja athygli á því að allir fjölmiðlar eru velkomnir í Húnavatnssýslu.

Bleikir æfingatímar!

17.02.2012
Fréttir
Tilkynning frá Bleika Töltmótinu:  Æfingartímar í Reiðhöllinni Víðidal verða milli kl. 18:00 og 22:00 í dag.  Einnig verður hægt að æfa sig frá kl. 14:00 – 17:00 á laugardeginum en þá verður brautin líka uppi.

Ístölt Austurlands

16.02.2012
Fréttir
Ístölt Austurlands verður haldið að Móavatni við Tjarnarland laugardaginn 25. febrúar. Keppni hefst kl:10:00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum tölt yngri en 16 ára, tölt áhugamanna, tölt opinn flokkur, A flokkur, B flokkur.