Bleikir æfingatímar!

17. febrúar 2012
Fréttir
Tilkynning frá Bleika Töltmótinu:  Æfingartímar í Reiðhöllinni Víðidal verða milli kl. 18:00 og 22:00 í dag.  Einnig verður hægt að æfa sig frá kl. 14:00 – 17:00 á laugardeginum en þá verður brautin líka uppi. Tilkynning frá Bleika Töltmótinu:  Æfingartímar í Reiðhöllinni Víðidal verða milli kl. 18:00 og 22:00 í dag.  Einnig verður hægt að æfa sig frá kl. 14:00 – 17:00 á laugardeginum en þá verður brautin líka uppi.
 
Keppni hefst 19. febrúar kl:13:00 og byrjað verður á byrjendaflokki.  Ráslistar verða birtir á morgun laugardag.
 
Góð skráning er á mótið og búast má við harðri keppni í öllum flokkum og glæsilegum konum á miklum gæðingum.

Áhorfendur og stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna í Reiðhöllina og taka þannig þátt í stórskemmtilegu móti!